Enski boltinn

Zlatan vill hefna sín á Pep

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan fer af velli án þess að heilsa Guardiola er þeir voru báðir hjá Barcelona.
Zlatan fer af velli án þess að heilsa Guardiola er þeir voru báðir hjá Barcelona. vísir/getty
Ein af ástæðum þess að Zlatan Ibrahimovic vill ganga í raðir Man. Utd er sú að hann vill hefna sín á Pep Guardiola.

Guardiola er tekinn við liði Man. City og með því að fara til United og gera City lífið leitt næði Zlatan fram einhvers konar hefndum.

Guardiola og Zlatan náðu engan veginn saman það eina tímabil sem Zlatan spilaði með Barcelona.

„Ég held að hann vilji hefna sín á Guardiola þó svo hann sé ekki beint með það á heilanum,“ saðgi Mino Raiola, umboðsmaður Zlatan.

Zlatan náði ekki að klára sín mál en fregnir herma að tilkynnt verði um vistaskipti hans til Man. Utd er Svíþjóð lýkur keppni á EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×