Fótbolti

Zlatan skoraði í sigri PSG á United | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain tryggðu sér sigur á International Champions Cup-æfingamótinu í Bandaríkjunum í nótt með því að leggja Manchester United í lokaleiknum, 2-0.

Blaise Matuidi og Zlatan Ibrahimovic skoruðu mörk PSG, en varnarleikur enska liðsins var ekki til útflutnings í hvorugu markinu.

Eftir að vinna þrjá ágæta sigra á mótinu heldur Manchester United nú heim með tap í farteskinu og áfram er hægt að spyrja spurninga um varnarleik liðsins þegar rúm vika er í að enska úrvalsdeildin hefjist.

Hér að ofan má sjá mörkin úr leiknum í lýsingu Guðmundar Benediktssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×