Fótbolti

Zlatan skoraði fallegt mark í sigri Svíþjóðar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Zlatan skorar.
Zlatan skorar. vísir/getty
Svíar áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Íran að velli í vináttulandsleik á heimavelli í kvöld, en Svíþjóð vann 3-1 sigur.

Zlatan Ibrahimovic, sem skoraði ótrúlegt mark gegn Moldavíu í undankeppni EM um helgina, kom Svíum á blað strax á ellefu mínútu.

Markið í kvöld var einnig mjög fallegt en hann klippti boltann í netið. Virkilega snyrtileg tilþrif.

Marcus Berg tvöfaldaði forskotið áður en Javan Nekounam minnkaði muninn fyrir gestina með marki úr vítaspyrnu á 24. mínútu.

Ekkert var skorað aftur fyrr en á 89. mínútu þegar Ola Toivonen, leikmaður Rennes, gulltryggði sigur Svíþjóðar með þriðja markinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×