Enski boltinn

Zlatan og Martial báðir með tvennu í öruggum sigri Man Utd | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zlatan og Martial sáu um markaskorun fyrir Man Utd í kvöld.
Zlatan og Martial sáu um markaskorun fyrir Man Utd í kvöld. vísir/getty
Manchester United er komið áfram í undanúrslit enska deildabikarsins eftir öruggan 4-1 sigur á West Ham United á Old Trafford í kvöld.

Auk Man Utd eru Liverpool, Hull City og Southampton komin áfram í undanúrslitin. Það kemur í ljós síðar í kvöld hvaða lið mætast í undanúrslitunum.

Zlatan Ibrahimovic og Anthony Martial skoruðu báðir tvívegis fyrir Man Utd sem var miklu sterkari aðilinn í leiknum í kvöld. Henrikh Mkhitaryan lagði upp tvö mörk.

Ashley Fletcher, fyrrum leikmaður Man Utd, skoraði mark West Ham. Hann jafnaði metin í 1-1 á 35. mínútu eftir slæm mistök Davids De Gea í marki Man Utd.

Rui Faria stýrði Man Utd í fjarveru José Mourinho sem tók út leikbann í kvöld.

Bastian Schweinsteiger kom inn á sem varamaður á 87. mínútu og lék sinn fyrsta leik á tímabilinu. Honum var vel fagnað af áhorfendum á Old Trafford.

Man Utd 1-0 West Ham Man Utd 1-1 West Ham Man Utd 2-1 West Ham Man Utd 3-1 West Ham Man Utd 4-1 West Ham

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×