Fótbolti

Zlatan afgreiddi Chelsea | Sjáðu mörkin

Zlatan fagnar marki sínu í kvöld.
Zlatan fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
PSG er komið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-2 sigur á Chelsea á Stamford Bridge í kvöld. Zlatan Ibrahimovic stal senunni í leiknum.

PSG vann fyrri leikinn 2-1 og vinnur því rimmuna 4-2 samtals.

Leikurinn byrjaði fjörlega og PSG var óhrætt við að sækja. Á 16. mínútu lagði Zlatan boltann laglega í teiginn þar sem Adrien Rabiot var mættur og mokaði boltanum í netið.

Chelsea var ekki lengi að jafna sig því Diego Costa skoraði með góðu skoti, og jafnaði leikinn, aðeins ellefu mínútum síðar. Hörkuleikur.

Það var aftur á móti Svíinn Zlatan Ibrahimovic sem afgreiddi einvígið er hann skoraði mark 23 mínútum fyrir leikslok. Mark og stoðsending hjá honum í kvöld.

Þetta er annað árið í röð sem PSG slær Chelsea út í Meistaradeildinni.



Rabiot skorar fyrir PSG Costa jafnar fyrir Chelsea Zlatan kemur PSG í 1-2.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×