Fótbolti

Zidane setti soninn inn á og hann þakkaði traustið með marki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zidane-feðgarnir ræðast við.
Zidane-feðgarnir ræðast við. vísir/epa
Real Madrid átti ekki í miklum vandræðum með að leggja C-deildarlið Leonesa að velli í seinni leik liðanna í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld. Lokatölur 6-1, Real Madrid í vil.

Hinn 21 árs gamli Enzo Zidane skoraði eitt marka Real Madrid í sínum fyrsta leik fyrir aðallið félagsins.

Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid, setti son sinn inn á í hálfleik og strákurinn þakkaði traustið þegar hann skoraði fjórða mark Madrídarliðsins á 63. mínútu.

Norska ungstirnið Martin Odegaard fékk einnig tækifæri í byrjunarliði Real Madrid í kvöld og lék allan leikinn.

Mariano Diaz Mejia skoraði þrennu fyrir Real Madrid í leiknum í kvöld og þeir James Rodríguez og Zidane sitt markið hvor. Þá skoraði leikmaður Leonesa sjálfsmark.

Real Madrid vann einvígið samtals 13-2 og er komið áfram í 16-liða úrslit bikarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×