Enski boltinn

Zenga rekinn eftir 87 daga í starfi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Walter Zenga var frábær markvörður á sínum tíma en virðist ekki vera eins öflugur þjálfari.
Walter Zenga var frábær markvörður á sínum tíma en virðist ekki vera eins öflugur þjálfari. vísir/getty
Úlfarnir ráku í dag knattspyrnustjóra félagsins, Walter Zenga, úr starfi.

Zenga var aðeins búinn að vera stjóri liðsins í 87 daga. Hinir kínversku eigendur félagsins réðu Zenga í sumar en þolinmæði þeirra í garð stjórans var ekki mikil.

Þeir eyddu líka haug af peningum fyrir tímabilið en það hefur ekki skilað miklu. Aðeins fjórir sigrar í fjórtán leikjum.

Wolves, sem Jón Daði Böðvarsson leikur með, er í átjánda sæti ensku B-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×