Glamour

Zayn færir sig yfir í tískubransann

Zayn Malik og kærasta hans Gigi Hadid.
Zayn Malik og kærasta hans Gigi Hadid. GLAMOUR/GETTY
Söngvarinn og hjartaknúsarinn Zayn Malik hefur nú tilkynnt um samstarf sitt við Giuseppi Zanotti en hann mun hanna skó línu fyrir fyrirtækið sem kemur út 2017.

Zayn og Giuseppi hittust í fyrsta skipti á tískuvikunni í París í fyrra og náðu ofboðslega vel saman, þá kviknaði fyrst hugmyndin um samstarf.

Hann tilkynnti samstarf þeirra með því að birta mynd á Instagram reikningi sínum í gær úr myndatöku sem birtist í tímaritinu GQ, en þar er hann einmitt í eigin hönnun. Forsmekkurinn af því sem koma skal og bíða margir spenntir.
GLAMOUR/SKJÁSKOT





×