Skoðun

Zappa og Jón Atli

Sverrir Tynes og skrifa
Það fer ekki framhjá mörgum að um þessar mundir fer fram rektorskjör við Háskóla Íslands. Jón Atli Benediktsson gefur kost á sér í embættið og er það mikið gleðiefni fyrir alla þá sem vilja velferð Háskólans sem mesta. Ég hef ekki skrifað marga pistla í íslenska fjölmiðla en hef þó skrifað nokkra um meistara Frank Zappa sem hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér síðan ég fyrst heyrði í meistaranum sem táningur árið 1974. Nú kann einhver að spyrja sig hvað eiga þessir tveir menn sameiginlegt? Jú, svarið er augljóst, þeir eru báðir meistarar og hafa spjallað saman.

Við Jón Atli kynntumst í verkfræðinámi við Háskóla Íslands haustið 1980. Okkur varð strax vel til vina og var það tónlistaráhuginn sem við áttum helst sameiginlegan því hann var ákafur nemandi en ég ekki. Það fór því svo að ég ákvað að bíða eftir internetinu til að klára mitt nám en Jón Atli kláraði að sjálfsögðu sitt verkfræðinám með sæmd og fór síðan utan til doktorsnáms. Ég beið í 20 ár eftir góðu interneti og kláraði ekki mitt nám fyrr en árið 2007.

Ég var staddur í New York þegar Moon Unit Zappa tilkynnti að faðir sinn hefði greinst með krabbamein og kæmi ekki á Zappa´s Universe tónleikana sem fóru fram næstu þrjá daga. Meistari Zappa var þó ekki hættur að sinna sínu starfi og vann allt árið 1992 við að undirbúa síðasta meistaraverk sitt The Yellow Shark.

Viðtal við Zappa þrátt fyrir veikindi hans

Leiðir okkar Jóns Atla lágu aftur saman þegar hann í félagi við Kolbein Árnason gerðu fimm þátta seríu á RÚV um Frank Zappa vorið 1992. Í þessum þáttum var flutt viðtal við Zappa og það var það fyrsta viðtal sem hann veitti frá því að hann greindist með krabbamein. Sú staðreynd að fá viðtal við Zappa á því tímabili sem hann veitti engin viðtöl sýndu mér enn einu sinni að Jón Atli framkvæmir þá hluti sem hann ætlar sér og nær árangri.

Vinnusemi Jóns Atla

Enn aftur að háskólaárunum. Um morguninn þann 9. desember 1980 bárust okkur þau sorgartíðindi að John Lennon hefði látist kvöldið áður fyrir utan heimili sitt í New York. Við félagarnir vorum staddir í Tjarnarbíó sem þá var notað til kennslu í Háskólanum og átti tími í stærðfræðigreiningu að hefjast skömmu eftir að við heyrðum þessi sorgartíðindi. Ólíkt Jóni Atla þá hafði ég engan sérstakan áhuga á því fagi en hvorugur okkar gat farið inn með einbeittan huga við námið og fórum við því á kaffihús og ræddum um þennan sorglega atburð. Sjálfur hafði ég oft “skrópað í tíma” en þetta er í fyrsta og eina skipti sem ég veit til að Jón Atli sinnti ekki sinni vinnu sem skyldi en eins og allir vita þá er nám vinna. Ég er þess fullviss að enginn atburður á eftir að koma upp sem fær Jón Atla til þess að sleppa einni vinnustund í framtíðinni, nema þá helst þegar Bob Dylan verður skotinn. Við skulum vona að það komi ekki til þess.

Ég styð Jón Atla Benediktsson heilshugar og er sannfærður um að hann á eftir að halda áfram því mikilvæga starfi að efla stöðu Háskóla Íslands innanlands sem utan.


Tengdar fréttir

Maðurinn sem óhreinkar ekki skyrtuna sína

Það er kaldur þriðjudagsmorgunn í höfuðvígi rafmagns- og tölvuverkfræðinema í Háskóla Íslands. Klukkan er sautján mínútur yfir átta og tíu litlir verkfræðinemar hjúfra sig hver að öðrum í hlýjum, grátóna hettupeysum.

„Konuspil“ í rektorskjöri?

Nú styttist í seinni umferð í rektorskjöri við Háskóla Íslands. Í framboði eru þau Jón Atli Benediktsson og Guðrún Nordal.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×