Enski boltinn

Zaha á óskalista Tottenham

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wilfried Zaha gæti flutt sig um set í London.
Wilfried Zaha gæti flutt sig um set í London. vísir/getty
Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham Hotspur ku hafa áhuga á Wilfried Zaha, kantmanni Crystal Palace.

Samkvæmt heimildum Daily Mail hefur Tottenham þó ekki enn gert formlegt tilboð í Zaha þótt áhuginn sé sannarlega til staðar.

Zaha, sem er 23 ára, hefur skorað sex mörk í 67 úrvalsdeildarleikjum fyrir Palace síðan hann kom til liðsins eftir mislukkaða dvöl hjá Manchester United.

Pochettino vill bæta við leikmannahóp Tottenham áður en félagaskiptaglugginn lokar en meðal leikmanna sem hafa verið orðaðir við liðið má nefna Tyrkjann Hakan Calhanoglu hjá Bayer Leverkusen.

Tottenham er með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í ensku úrvalsdeildinni. Liðið mætti einmitt Palace um síðustu helgi og lauk þeim leik með 1-0 sigri Tottenham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×