Tónlist

Zack de la Rocha og Travis Barker til bjargar

El-P and Killer Mike mynda rappdúettinn Run the Jewels.
El-P and Killer Mike mynda rappdúettinn Run the Jewels. Vísir/Getty
Rappararnir El-P og Killer Mike sem mynda rappdúettinn Run the Jewels eru nú önnum kafnir við upptökur á nýrri plötu með sannkölluðu stórskotaliði.

Travis Barker, trommari Blink-182 og Zack de la Rocha, söngvari Rage Against the Machine's aðstoða þá félaga ef marka má myndir af Instagram aðgangi trommarans. Báðir eru þeir álitnir goðsagnir á sínu sviði í tónlistarheiminum og hafa farið sigurför um heiminn með hljómsveitum sínum.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Barker leikur með röppurum því hann fékk þá Lil' Wayne, Ludacris, Kid Cudi og Rick Ross til þess að aðstoða sig á sólóplötu sem hann gaf út árið 2011.

Run the Jewels gaf út samnefnda plötu á síðasta ári og ætlar því ekki að bíða lengi eftir því að senda frá sér nýja plötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×