Golf

Zach Johnson sigraði á Opna breska eftir dramatískan lokahring

Johnson fagnar fugli á lokaholunni í dag.
Johnson fagnar fugli á lokaholunni í dag. Getty

Lokahringurinn á Opna breska meistaramótinu sem kláraðist á St. Andrews í kvöld var gríðarlega spennandi en margir kylfingar skiptust á forystunni á seinni níu holunum og að lokum þurfti bráðabana til þess að skera úr um úrslitin.

Bandaríkjamaðurinn Zach Johnson, Ástralinn Mark Leishman og Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen léku best og enduðu á 15 höggum undir pari og þurftu því að leika fjórar holur til þess að skera úr um titilinn.

Bráðabaninn var líka spennandi fram á síðasta pútt þar sem Louis Oosthuizen missti rúmlega tvo metra fyrir fugli sem tryggði Zach Johnson sigurinn, en hann lék holurnar fjórar á einu höggi undir pari.

Þetta er annar risatitill Johnson sem sigraði einnig á Masters mótinu árið 2007 en hann er talinn einn sá besti í stutta spilinu á PGA-mótaröðinni þrátt fyrir vera frekar höggstuttur.

Jordan Spieth var grátlega nálægt því að tryggja sér sinn þriðja risatitil í röð en hann endaði á 14 höggum undir pari eftir að hafa fengið leiðinlegan skolla á 17. holu.

Annar sem rétt missti af tækifærinu þetta árið var Jason Day en hann endaði eins og Spieth á 14 höggum undir pari, aðeins einu á eftir efstu mönnum.

Þá voru augu margra á írska áhugamanninum Paul Dunne sem leiddi á 12 höggum undir pari fyrir lokahringinn en hann lét pressuna alveg fara með sig og lék lokahringinn á 78 höggum eða sex yfir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×