Lífið

YouTube spólar til baka yfir árið 2016

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
James Corden er góðkunnur lesendum Vísis.
James Corden er góðkunnur lesendum Vísis. Vísir/Skjáskot
YouTube hefur gefið út sitt árlega „Rewind“ myndband þar sem litið er yfir farinn veg á árinu með helstu YouTube stjörnunum

Myndbandið var tekið upp í yfir 18 löndum og skartar nær 200 YouTube stjörnum.

„Damn Daniel,“ Pen-Pineapple-Apple-Pen, tónlistarmyndband Kanye West við lagið Famous og Lemonade plata Beyoncé eru meðal hápunktanna þetta árið og er myndbandið hið glæsilegasta.

Hljómsveitin Major Lazer sá um tónlistarvalið fyrir myndbandið og má heyra helstu smelli ársins frá Justin Bieber, Fifth Harmony og The Chainsmokers.

Annál YouTube má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×