Tónlist

Young Fathers hlaut Mercury

Hljómsveitin Young Fathers bar sigur úr býtum á Mercury-verðlaunahátíðinni.
Hljómsveitin Young Fathers bar sigur úr býtum á Mercury-verðlaunahátíðinni. Nordicphotos/Getty
Skoska hiphop-tríóið Young Fathers, sem er frá Edinborg, hlaut hin virtu Mercury-verðlaun í fyrrakvöld en þau eru veitt flytjanda sem á bestu bresku eða írsku plötuna undanfarna tólf mánuði.

Fyrsta plata Young Fathers, Dead, sló við ellefu öðrum plötum frá listamönnum á borð við Damon Albarn, Bombay Bicycle Club, Royal Blood og FKA Twigs, sem var líklegust til að vinna samkvæmt veðbönkum.

„Við vildum alltaf búa til eitthvað sem er stærra en borgin okkar,“ sagði einn af Ungu feðrunum, Graham „G“ Hasting.

Young Fathers hlaut í verðlaun 20 þúsund pund, eða tæpar fjórar milljónir króna. Í stuttri þakkarræðu sagði Alloysious Massaquio, einn meðlima sveitarinnar: „Takk fyrir, við elskum ykkur, við elskum ykkur öll.“

Simon Frith, formaður dómnefndar, hafði þetta að segja um sigursveitina: „Young Fathers hefur einstaka sýn á breska „urban“-tónlist. Hún er uppfull af hugmyndum, ýtin, kemur á óvart og er hrífandi,“ sagði hann.

Platan Dead hafði selst næstminnst af öllum plötum sem voru tilnefndar, eða í rúmum tvö þúsund eintökum síðan hún kom út í febrúar.

Á meðal annarra sigurvegara Mercury-verðlaunanna í gegnum árin eru Alt-J, The xx og PJ Harvey, sem hefur tvisvar borið sigur úr býtum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×