Enski boltinn

Yorke missti prófið í hálft ár

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dwight Yorke.
Dwight Yorke. vísir/getty
Fyrrum leikmaður Man. Utd, Dwight Yorke, gæti þurft að nota strætó næsta hálfa árið.

Það er nefnilega búið að svipta hann ökuskírteininu í hálft ár. Hann var gripinn á 106 km/h þar sem hámarkshraði er 65 km/h.

Yorke var á glæsilegum Corvette-bíl en hann auglýsti þennan bíl tveim árum áður og hefur líklega fengið eitt stykki fyrir vinnuna.

Yorke játaði brot sitt. Hann var einnig sektaður um rúmar 300 þúsund krónir fyrir hraðaksturinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×