Sport

Yogi „Jógi Björn“ Berra er látinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jógi og Jógi.
Jógi og Jógi. vísir/getty
Yogi Berra, ein mesta hafnaboltagoðsögn sögunnar, er látinn 90 ára að aldri. Forráðamenn Yogi Berra-safnsins í Bandaríkjunum tilkynntu að þessi heiðurshallarmeðlimur MLB-deildarinnar væri fallinn frá í gærkvöldi.

Berra er einn allra besti leikmaðurinn í sögu hafnaboltans, en hann spilaði nánast allan sinn 19 ára feril með New York Yankees.

Hann spilaði sem grípari og var þrisvar sinnum kjörinn besti leikmaður deildarinnar og varð þrettán sinnum meistari með Yankees.

Berra var einn litríkasti karakterinn í bandarísku íþróttalífi um langt skeið og lét út úr sér margar frægar setningar á borð við: „Þetta er ekki búið fyrr en það er búið“ og „Þetta er eins og Déjà vu aftur“.

Nokkrar af frægustu setningum Berra:

„Það er ekki hitinn sem er að trufla okkur heldur hógværðin (e. It ain't the heat; it's the humility).

„Hafnabolti snýst 90 prósent um hausinn á mönnum og hinn helmingurinn er líkamlegur.“

„Þú gefur þig 100 prósent í fyrri helming leiksins og ef það er ekki nóg gefurðu það sem eftir er í seinni hálfleik.“

„Ég sagði aldrei megnið af því sem ég sagði. Takið öllu með fyrirvara.“

„Ég veit ekki hvert þú ert að fara. Þú gætir endað einhversstaðar annars staðar.“

„Ég var alveg viss um að metið myndi standa þar til það yrði bætt.“

„Ef heimurinn væri ekki fullkominn væri hann það ekki.“

„Farið alltaf í jarðafarir annars fólks því annars kemur það ekki í þína.“

Yogi Berra er sagður maðurinn sem William Hanna og Joseph Barbera, Hanna-Barbera, sköpuðu teiknimyndakarakterinn Jóga Björn eftir.

Berra kærði þá félagana sem sögðu nafnið og stælana í skógarbirninum vinsæla vera hreina tilviljun. Það er samt talið nokkuð öruggt að Jógi Björn hafi verið skapaður í ímynd Berra.

Hann féll frá kærunni og málið fór aldrei fyrir dómstóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×