Körfubolti

Ýmist í ökkla eða eyra á Vesturlandinu í körfunni í vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fulltrúar liðanna átta í Domino's deild kvenna 2016-17.
Fulltrúar liðanna átta í Domino's deild kvenna 2016-17. Mynd/KKÍ
Snæfell og Skallagrímur eru í fyrsta sinn með bæði karla- og kvennaliðin sín í úrvalsdeildunum á sama tíma en karla- og kvennaliðum félagsins er spáð mjög ólíku gengi í vetur.

Körfuknattleikssambandið gaf út í dag sína árlegu spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í Dominos-deildum karla og kvenna en keppni í þeim hefst í vikunni.

Í Domino´s deild kvenna er Snæfelli spáð fyrsta sæti og nýliðunum Skallagríms er síðan spáð öðru sætinu. Samkvæmt spánni gæti því orðið Vesturlandsslagur í lokaúrslitunum í ár.

Snæfell hefur orðið Íslandsmeistari undanfarin þrjú ár og Skallagrímur vann 1. deildina í fyrravetur. Bæði liðin fengu því gull um hálsins síðasta vor.

Karlaliðin enda aftur á móti á hinum enda töflunnar ef marka má þessa spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna.

Þar er karlaliði Snæfells spáð neðsta sætinu í Domino´s deild karla og nýliðar Skallagríms verða að sætta sig við það að falla aftur niður í 1. deildina.

Munurinn er gríðarlegur hjá liðunum úr Stykkishólmi en Ingi Þór Steinþórsson þjálfari einmitt bæði liðin. Stelpurnar fengu yfirburðarkosningu í efsta sætið en strákarnir voru aftur á móti langneðstir.



Spáin í Domino’s deild kvenna:

 1. Snæfell  186 stig

 2. Skallagrímur 141 stig

 3. Grindavík  133 stig

 4. Stjarnan  118 stig

 5. Valur  105 stig

 6. Keflavík  100 stig

 7. Haukar   46 stig

 8. Njarðvík   37 stig

Spáin í Domino’s deild karla:

 1. Stjarnan        404 stig

 2. KR            403 stig

 3. Tindastóll        358 stig

 4. Þór Þ.        282 stig

 5. Njarðvík        251 stig

 6.-7 Haukar        223 stig

 6.-7. Þór Ak.        223 stig

 8. Keflavík        205 stig

 9. ÍR            168 stig

10. Grindavík        148 stig

11. Skallagrímur    96 stig

12. Snæfell        44 stig

Fulltrúar liðanna tólf í Domino's deild karla 2016-17.Mynd/KKÍ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×