Erlent

Ýjar að því að Rússar fremji stríðsglæpi

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Nauðsynjavörur ætlaðar borgurum lágu á víð og dreif í kjölfar árásarinnar.
Nauðsynjavörur ætlaðar borgurum lágu á víð og dreif í kjölfar árásarinnar. Nordicphotos/AFP
„Þeir eru sekir um að lengja þetta stríð og gera það mun viðurstyggilegra og ég held að þegar komi að árásum á bílalestir góðgerðarsamtaka þurfi að rannsaka hvort þær árásir séu gerðar vitandi það að skotmarkið sé saklaust með öllu,“ sagði Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, í viðtali við BBC í gær. Vísar Johnson þar til aðgerða Rússlandshers í Sýrlandi, nánar tiltekið við borgina Aleppo.

Rússar eru sakaðir um að hafa gert árás á bílalest góðgerðarsamtaka, með nauðsynjavörur á borð við mat og lyf, sem ætluð var borgurum Aleppo. Átján vörubílar eyðilögðust í árásinni og fórust tuttugu. Rússar hafa hins vegar neitað ábyrgð á árásinni og sagt að annaðhvort hafi þarna verið að verki bandarískur dróni eða sýrlenskir uppreisnarmenn.

„Við búum við þann veruleika að sprengjum er síendurtekið varpað á Aleppo á villimannslegan hátt,“ sagði Johnson einnig.

Árásin var gerð síðastliðinn mánudag þegar bílalestin var um tuttugu kílómetra frá borginni. „Ef þeir sem réðust á bílalestina gerðu það, vitandi að hún væri frá góðgerðarsamtökum, væru þeir sekir um stríðsglæp. Það er alveg skýrt,“ sagði Stephen O’Brien, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna á sviði mannúðarmála, á mánudagskvöld.

Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands.Nordicphotos/AFP
Þá hefur einn sendiherra Sameinuðu þjóðanna á svæðinu, Staffan de Mistura, sagt að tvær rússneskar herþotur hafi ráðist á bílalestina. Hann sagði þó ekki vitað hvort ráðist hafi verið á hana af ásettu ráði.

Johnson segir það hins vegar vel mögulegt. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, væri ekki bara að aðstoða Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, heldur tæki hann sjálfur virkan þátt í stríðinu.

„Við þurfum að rannsaka hvort sjónum hafi verið beint að bílalestinni, vitandi að skotmarkið væri saklaust. Það væri stríðsglæpur,“ sagði Johnson.

Þá fórust einnig sex börn í sprengjuárás ríkisstjórnarhersins í Aleppo í gær. Stjórnarherinn hefur barist við uppreisnarmenn, Kúrda og Íslamska ríkið nærri borginni frá árinu 2012. Kúrdar, uppreisnarmenn og stjórnarherinn hafa nú yfirráð víðs vegar um borgina.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×