Innlent

Yfirvinnubann flugumferðarstjóra kostað erlend flugfélög tvo milljarða

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, hefur haft í nógu að snúast að undanförnu.
Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, hefur haft í nógu að snúast að undanförnu. Vísir
Yfirvinnubann flugumferðarstjóra hefur haft töluverð áhrif á flugsamgöngur hér á landi og einnig fyrir Ísland í alþjóðlegu samhengi. Yfirvinnubannið hefur staðið yfir frá 6. apríl síðastliðnum en samningaviðræður milli Samtaka atvinnulífsins og Félags íslenskra flugumferðarstjóra hafa staðið yfir síðan í nóvember á síðasta ári.

Samkvæmt heimildum Vísis er enn talsvert langt í land í samningaviðræðunum. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í febrúar.  

„IATA, International air transport association, hafa lýst yfir áhyggjum af þessu ástandi við okkur vegna þess að við, íslenska þjóðin, höfum gengist undir alþjóðlegar skuldbindingar þegar kemur að flugumferð,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.

IATA eru samtök 260 flugfélaga en flugfélögin sem IATA er í forsvari fyrir sinna um 83 prósent allrar flugumferðar.

Orðspor Íslands bíður hnekki

„Við höfum skuldbundið okkur til að veita örugga, hagkvæma og óslitna þjónustu á okkar flugumferðarsvæði. Til þess að viðhalda örygginu þurfum við að minnka þjónustuna með tilheyrandi óhagræði fyrir flugfélög sem fljúga á milli Norður-Ameríku og Evrópu.“

Sjá einnig: Deilu flugumferðarstjóra vísað til ríkissáttasemjara

Vegna yfirvinnubannsins hefur Isavia þurft að vísa töluvert af flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið yfir í hið skoska eða um þrjátíu prósent af allri umferð.

„Við höfum aðeins þurft að dempa traffíkina í okkar svæði. Þetta eru ansi margar flugferðir, svona á þrjú þúsund sem hafa þurft að færa flugleiðina sína,“ útskýrir Guðni. Þetta merkir aukinn eldsneytiskostnað fyrir þau flugfélög sem nýta íslenska lofthelgi til þess að fljúga hagkvæmustu leiðina á milli Evrópu og Norður-Ameríku. Hagkvæmasta leiðin er oft í gegnum íslenska lofthelgi, það fer eftir veðrum og vindum. 

„Svona gróft áætlað eru þetta um tveir milljarðar fyrir þrjú þúsund flugferðir,“ segir Guðni. Hann segir að um fjölmörg flugfélög sé að ræða og nefnir sem dæmi félög á borð við United Airlines, British Airways og Lufthansa. IATA hefur engar heimildir til þess að beita viðurlögum hér á landi komi til áframhaldandi þjónustuskerðingar sérstaklega vegna þess að aðgerðir flugumferðarstjóra fullkomlega löglegar. 

Kennslu- og æfingaflug takmarkað

„Þeir höfðu bara samband, spurðust fyrir og lýstu yfir áhyggjum af þessu ástandi sem er komið upp.“ Því hafa erfiðleikar við að ná sáttum í deilunni valdið því að orðspor Íslands hefur beðið hnekki í flugstjórnarheiminum. 

„Já. Og líka fyrir Ísland sem ferðaþjónustuland. Það er auðvitað ekki gott að fá á sig verkfallsstimpilinn núna í stærsta ferðamannasumri Íslands fyrr og síðar.“ 

Yfirvinnubannið hefur ekki aðeins valdið röskun á flugi í gegnum Keflavíkurflugvöll og Reykjavíkurflugvöll heldur hefur þurft að gera takmarkanir á kennslu- og æfingaflugi. Þegar aðila vantar á vaktina er það látið mæta afgangi til þess að hægt sé að halda áætlun. 

Næst er fundur á morgun en sem fyrr segir ber töluvert á milli aðila enn. Samkvæmt heimildum Vísis leggja Samtök atvinnulífsins mikla áherslu á að draga upp samninga í samræmi við SALEK-samkomulagið en hugmyndir Félags íslenskra flugumferðarstjóra eru af allt öðrum toga.


Tengdar fréttir

Flugumferðarstjórar vilja meira en 25%

Flugumferðarstjórn gæti flust frá Íslandi vegna tíðra launadeilna og krafna um hækkanir umfram aðra, segir framkvæmdastjóri SA. Heildarlaun flugumferðarstjóra nema um milljón að jafnaði. Hafa hafnað fjórðungshækkun á laun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×