Viðskipti innlent

Yfirmenn Ísal skipa út áli í dag

Heimir Már Pétursson skrifar
Tólf yfirmenn og stjórnarmenn álversins í Straumsvík byrja að skipa út áli frá fyrirtækinu nú í kring um hádegið, eftir að Sýslumaðurinn í Reykjavík úrskurðaði í gær að þetta fólk mætti ganga í störf hafnarverkamanna. Formaður verkalýðsfélagsins Hlífar efast um getu þessa fólks til að sinna þessum störfum.

Flutningaskip á vegum álversins er nú í Straumsvíkurhöfn og var varningi skipað upp úr skipinu í morgun. Útflutningsbann verkalýðsfélagsins Hlífar á áli er hins vegar enn í gildi þótt Sýslumaðurinn í Reykjavík hafi úrskurðað í gær að fimmtán yfirmenn hjá fyrirtækinu, þar af fimm stjórnarmenn, megi ganga í störf hafnarverkamanna sem alla jafna sjá um útskipun á áli.

Á meðal stjórnarmanna eru þrír Frakkar og svo Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis hf. Kolbeinn Gunnarsson, formaður Hlífar, segir menn ekki hafa búist við þessari niðurstöðu hjá Sýslumanni og hann efast um að þetta fólk geti gengið í störf hafnarverkamannanna og segir að réttindi þessa fólks til að stjórna vinnuvélum verði könnuð.

„Ég er ekki alveg að skilja hvernig þau ætla að vinna þessa vinnu því þetta fólk hefur aldrei komið nálægt svona störfum og hefur enga reynslu eða þekkingu á því,“ segir Kolbeinn. „Þá spyr maður sig í ljósi þess að Ísal hefur státað sig af miklu öryggi fyrir starfsmenn, en ég veit ekki hvað þetta fólk er búið að fara í gegnum mikið af öryggisnámskeiðum hér á svæðinu.“

En venjulega vinni enginn hjá fyrirtækinu án þess að hafa verið í svo kallaðri fóstrun hjá vönum starfsmanni í minnst tvo daga áður en menn geti byrjað að vinna einir.

Úr jakkafötunum í samfestinginn

Er þessi hópur með nógu mikla þjálfun til að ganga í þessi störf með litlum fyrirvara?

„Það mun enginn sinna störfum sem hann hefur ekki þjálfun til eða réttindi. Það eru alveg hreinar línur,“ segir Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Ísal. Þannig að öryggið verði í fyrirrúmi, enda alltaf verið á oddinum hjá fyrirtækinu.

Hann vill hins vegar ekkert segja til um hvort frönsku stjórnarmennirnir þrír muni koma til landsins til að skipa út áli í Straumsvík. Úrskurður sýslumanns þýði að fyrirtækið komi að minnsta kosti hluta af því sem flytja á út til viðskiptavina fyrirtækisins.

„Á því hvílir nú tilverugrundvöllur fyrirtækisins, að geta selt sína vöru. Þannig að okkur hefur væntanlega tekist að afstýra hluta af því tjóni sem annars hefði hlotist,“ segir Ólafur Teitur.

Þú segir hluta, reiknið þið ekki með að það fari allt eins og hefði gerst?

„Það er bara ekki gott að segja á þessu stigi. Við getum alla vega ekki fullyrt að við náum að lesta öllum málminum um borð,“ segir Ólafur Teitur sem reiknar með að skipið verði í Straumsvíkurhöfn þar til á morgun.

Formaður Hlífar segir að ekki sé búið að draga tennurnar úr aðgerðum starfsmannanna með úrskurði sýslumanns.

Eruð þið í ljósi þessa alls að ræða að víkka ykkar aðgerðir út?

„Það á allt eftir að fara til skoðunar núna næstu klukkustundir eða næstu daga í samninganefndinni hjá okkur. Hvaða skref við tökum næst,“ segir Kolbeinn Gunnarsson.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×