Innlent

Yfirlýsing MP banka: Fjölskyldutengslin hafa legið lengi fyrir

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
MP banki og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
MP banki og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. vísir
MP banki hefur sent yfirlýsingu til fjölmiðla í kjölfar umfjöllunar Vísis um innihald fjárkúgunarbréfs þess er Malín Brand og Hlín Einarsdóttir sendu forsætisráðherra. Í yfirlýsingunni kemur fram að fjölskyldutengsl forsætisráðherra og stjórnenda bankans hafi legið lengi fyrir. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan.

Fjölmiðlar hafa fjallað um tengsl MP banka við rannsókn lögreglu á tilraun til að kúga fé út úr forsætisráðherra. Fullyrt hefur verið í fréttum að í bréfi sem sent var á heimili forsætisráðherra komi fram að ráðherrann hafi beitt sér fyrir láni frá MP banka til tilgreindra fyrirtækja. Bréfið sem um ræðir er sönnunargagn í lögreglurannsókn og hefur ekki verið gert opinbert. Forsvarsmenn MP banka hafa ekki séð bréfið og þekkja ekki þær ásakanir sem þar eru settar fram.

MP banki getur ekki tjáð sig efnislega um hvort nafngreindir einstaklingar eða fyrirtæki eru, eða eru ekki, í viðskiptum við bankann. Bankinn getur ekki rofið trúnað um viðskiptavini eða einstök viðskipti. Við getum þó fullyrt að vinnulag bankans er í öllum tilvikum í fullu samræmi við þau lög sem gilda um starfsemi fjármálafyrirtækja.

Í fréttum hefur jafnframt verið fjallað um tengsl forsætisráðherra við MP banka. Rétt er að fjölskyldutengsl eru á milli forstjóra bankans og forsætisráðherra. Þau tengsl hafa legið fyrir lengi og hafa engin áhrif haft á rekstur bankans. MP banki er starfræktur með faglegum hætti þar sem hagur viðskiptavina og hluthafa bankans er hafður að leiðarljósi.

Einnig hefur verið fjallað um þá staðreynd að starfsmenn bankans hafa fengið leyfi frá störfum til að vinna með stjórnvöldum að vandasömum úrlausnarefnum sem varða þjóðarhag, þar með talið afléttingu gjaldeyrishafta. Hjá MP banka vinna margir hæfir sérfræðingar. Stjórnvöld hafa leitað eftir því að fá að njóta starfskrafta þriggja starfsmanna bankans vegna tímabundinna verkefna. Einn þeirra hætti hjá bankanum til að geta sinnt slíku verkefni og tveimur þeirra hefur bankinn veitt leyfi frá störfum til að sinna þessum verkefnum.

MP banki hefur ekki hagsmuni af því en lítur á það sem samfélagslega skyldu bankans að starfsfólkið fái leyfi frá störfum til að sinna þessum þjóðhagslega mikilvægu verkefnum.


Tengdar fréttir

Sökuðu manninn um að hafa nauðgað Hlín

Maðurinn sem lagði fram kæru á hendur systrunum Hlín Einarsdóttur og Malín Brand í dag vegna fjárkúgunar greiddi 700 þúsund krónur gegn því að vera ekki sakaður um að hafa nauðgað Hlín.

Sérsveitin kölluð til þótt öryggi Sigmundar væri ekki ógnað

Sú staðreynd að fjárkúgunarkröfu var beint gegn forsætisráðherra og fjölskyldu hans hafði ekki áhrif á umfang aðgerðar lögreglu. "Þetta var tilraun til fjárkúgunar og viðbrögð í samræmi við það,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson.

Annað fjárkúgunarmál

Kæra var í dag lögð fram hjá lögreglunni á hendur systrunum Hlín Einarsdóttur og Malínar Brand vegna fjárkúgunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×