Innlent

Yfirlýsing hjúkrunarfræðinema: Ætla ekki að ráða sig í störf eftir útskrift

Bjarki Ármannsson skrifar
Skortur er á hjúkrunarfræðingum hér á landi og allt að helmingur stéttarinnar gæti verið óstarfandi eftir nokkur ár.
Skortur er á hjúkrunarfræðingum hér á landi og allt að helmingur stéttarinnar gæti verið óstarfandi eftir nokkur ár. Vísir/Vilhelm
Yfir 250 hjúkrunarnemar á 1., 2. og 3. ári frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri hafa ákveðið að ráða sig ekki í störf hjúkrunarfræðinga að lokinni útskrift nema betri kjarasamningar náist við ríkið. Hópurinn hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis og sent heilbrigðisráðherra.

Rúmlega tvö hundruð hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum á Landspítalanum frá því að lögbann var sett á verkfall þeirra. Skortur er á hjúkrunarfræðingum hér á landi og segir í samstöðuyfirlýsingu nemanna að allt að helmingur stéttarinnar verði óstarfandi eftir nokkur ár ef uppsagnir standi, hjúkrunarfræðingar sem komnir eru á aldur fari á eftirlaun og nemarnir standi við að ráða sig ekki í störf að lokinni útskrift.

„Hjúkrunarfræðinemar hvetja stjórnvöld til að verða við eðlilegum kröfum um laun í samræmi við menntun og ábyrgð og útrýma kynbundnum launamun,” segir meðal annars í yfirlýsingunni. „Ef halda á í nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga verða starfskjör að vera samkeppnishæf við nágrannalönd og stéttir með sambærilega menntun.”


Tengdar fréttir

Stór hluti mun ekki draga uppsagnir til baka

Að minnsta kosti 170 hjúkrunarfræðingar hafa sagt starfi sínu lausu á Landspítalanum. Hjúkrunarfræðingar segja fulla alvöru að baki uppsögnunum.

Segir forsendur fyrir dómi gerðardóms vera brostnar

Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir þungt hljóð í félagsmönnum. Telur að komið hafi verið í veg fyrir að laun hjúkrunarfræðinga verði ákveðin með dómi. Samningurinn hefur engin áhrif á deilu BHM við ríkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×