Viðskipti innlent

Yfirlýsing Herbalife: Starfsemi á Íslandi í fullu samræmi við lög

Bjarki Ármannsson skrifar
Sölukerfi Herbalife hefur vakið athygli hérlendis sem erlendis.
Sölukerfi Herbalife hefur vakið athygli hérlendis sem erlendis. Vísir/AFP
Heilsurisinn Herbalife segist handviss um að starfsemi þess á Íslandi sé í fullu samræmi við lög og reglur. Margar fréttaveitur greindu frá því um helgina að bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsaki nú starfsemi fyrirtækisins.

Financial Times greindi fyrst frá þessum tíðindum en rannsóknin er talin snúa að sölukerfi fyrirtækisins sem nýtist að miklu leiti við sjálfstæða dreyfingaraðila víða um heim. Þessir aðilar græða frekar á því að ráða fleiri aðila til Herbalife en á sjálfri sölunni.

Í yfirlýsingu frá Herbalife segir að fyrirtækið viti ekki til þess að rannsókn sé í gangi af hálfu FBI og að lögreglan hafi ekki beðið það um að reiða fram neinar upplýsingar. Talsmenn FBI hafa hvorki staðfest né neitað því opinberlega að rannsókn standi yfir.

Herbalife segist jafnframt fagna skoðun bandaríska viðskiptaeftirlitsins, FTC, sem hefur staðið yfir frá því í síðasta mánuði. Sú skoðun tengist meðal annars ásökunum um að fyrirtækið hafi gerst sekt um mismunum gagnvart minnihlutahópum.

„Fyrirtækið mun starfa með FTC og lítur á skoðunina sem tækifæri fyrir Herbalife að láta fara vandlega yfir þessi mál,” segir í yfirlýsingunni. “Þetta er kærkominn staðgengill þess að þurfa að svara innistæðulausum og villandi fullyrðingum þeirra sem vilja græða á kostnað Herbalife.”

Fyrirtækið seldi vörur og þjónustu víða um heim fyrir rúma 537 milljarða króna á síðasta ári. Hvað starfsemi Herbalife á Íslandi varðar segist fyrirtækið visst um að hún sé í samræmi við lög.

„Hæstiréttur í Belgíu skoðaði vandlega sölukerfi okkar nýverið og komst að þeirri niðurstöðu að það væri löglegt með öllu.“

Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast ekki ætla að tjá sig frekar um málið nema frekari þróanir eigi sér stað.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×