Innlent

Yfirlýsing frá stjórnarandstöðunni: „Dapurlegt að slík tækifæri séu ekki nýtt til að bæta vinnubrögð“

Tryggvi Páll Tryggvason. skrifar
Stjórnarandstaðan er ósátt við skort á samráði.
Stjórnarandstaðan er ósátt við skort á samráði. Vísir/Anton Brink
Formenn og fulltrúar flokkanna sem sitja í stjórnarandstöðu lýsa yfir undrun sinni á því að ekki var haft samráð við flokkanna fjóra þegar skipuð verkefnastjórn um endurskoðun peningastefnu Seðlabankans.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu formanna og fulltrúa Vinstri-grænna, Pírata, Framsóknarflokks og Samfylkingar.

Þriggja manna verkefnisstjórn um endurmat peningastefnu var skipuð um helgina og í henni eiga sæti Dr. Ásgeir Jónsson hagfræðingur, Ásdís Kristjánsdóttir hagfræðingur og Illugi Gunnarsson hagfræðingur og fyrrverandi ráðherra.

Í yfirlýsingu stjórnarandstöðuflokkanna segir að þessir þrír aðilar hafi verið skipaðir án samráðs við minnihlutann á Alþingi. Segir í yfirlýsingunni að þar með hafi ríkisstjórn misst af tækifæri til þess að skapa þverpólitíska sátt um vinnu verkefnastjórnarinnar.

„Fulltrúum stjórnarflokkanna hefur orðið tíðrætt um bætt vinnubrögð á Alþingi og aukið samráð. Lítið hefur orðið um aðgerðir í þessa veru og það vekur furðu að verkefnisstjórn um jafn umfangsmikið og mikilvægt verkefni og endurskoðun peningastefnunnar sé skipuð með einhliða af ríkisstjórn með minnsta mögulega meirihluta á Alþingi,“ segir í yfirlýsingunni.

„Það er dapurlegt að slík tækifæri séu ekki nýtt til að bæta vinnubrögð á Alþingi,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni.

Yfirlýsing frá formönnum og fulltrúum Vinstri-grænna, Pírata, Framsóknarflokks og Samfylkingar í heild sinni

„Ábyrg og vönduð mótun peningastefnu er lykilatriði að hagsæld Íslands. Endurskoðun á peningastefnunni er eitt mikilvægasta verkefnið sem Ísland stendur frammi fyrir. 

Formenn og fulltrúar Vinstri-grænna, Pírata, Framsóknarflokks og Samfylkingar lýsa því undrun sinni á verklagi ríkisstjórnarinnar við skipan verkefnastjórnar um endurskoðun á peningastefnu Seðlabankans. Þar hafa þrír aðilar verið skipaðir án nokkurs samráðs við minnihlutann á Alþingi og var formönnum og fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna tilkynnt um þessa skipan í fyrradag.

Fulltrúum stjórnarflokkanna hefur orðið tíðrætt um bætt vinnubrögð á Alþingi og aukið samráð. Lítið hefur orðið um aðgerðir í þessa veru og það vekur furðu að verkefnisstjórn um jafn umfangsmikið og mikilvægt verkefni og endurskoðun peningastefnunnar sé skipuð með einhliða af ríkisstjórn með minnsta mögulega meirihluta á Alþingi.

Þarna hafði ríkisstjórnin tækifæri til að skipa nefnd sérfræðinga í góðu samráði við alla flokka á þingi og tryggja þannig þverpólitíska sátt um þá vinnu sem er framundan. Ríkisstjórnin nýtti ekki þetta tækifæri en bendir á samráðsnefnd þingflokka sem hefur óljósu hlutverki að gegna við þetta verkefni. Það er dapurlegt að slík tækifæri séu ekki nýtt til að bæta vinnubrögð á Alþingi.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×