Erlent

Yfirlýsing EBU: Ákvörðun úkraínskra yfirvalda mikil vonbrigði

Atli Ísleifsson skrifar
Hin 27 ára Julia Samoilova hefur viðurkennt að hafa sungið á Krímskaga árið 2015.
Hin 27 ára Julia Samoilova hefur viðurkennt að hafa sungið á Krímskaga árið 2015. Vísir/AFP
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva EBU segir ákvörðun úkraínskra yfirvalda um að banna komu rússnesku söngkonunnar Juliu Samoylova til Úkraínu vera mikil vonbrigði.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá EBU.

Úkraínska öryggislögreglan hefur bannað komu rússneska keppandans vegna „ólöglegrar heimsóknar“ hennar til Krímskaga þar sem hún kom fram árið 2015. Rússland innlimaði Krímskaga ári fyrr.

Í yfirlýsingu frá EBU segir að nauðsynlegt sé að virða lög og reglur þess ríkis sem hýsir keppnina hverju sinni, en hins vegar sé ákvörðunin mikil vonbrigði þar sem hún gangi gegn anda og gildum keppninnar.

Sjá einnig:Eurovision-stjarnan Dima Bilan á Íslandi

„Við munum halda áfram samtali okkar við úkraínsk yfirvöld með það að markmiði að tryggja að allir listamenn geti komið fram á 62. Eurovision-keppninni í Kíev í maí,“ segir í yfirlýsingunni.

140 listamenn á svörtum lista

Hin 27 ára Samoilova hefur viðurkennt að hafa sungið á Krímskaga árið 2015, en að minnsta kosti 140 rússneskir listamenn eru nú á svörtum lista SBU. 

Stjórnvöld í Úkraínu og Rússlandi hafa eldað grátt silfur á síðustu árum vegna deilna um landsvæði í austurhluta Úkraínu. 

Úkraína vann óvænt Eurovision í fyrra með flutningi söngkonunnar Jamala á laginu 1944. Lagið fjallar um fjöldafólksflutninga Josefs Stalíns á Tatörum frá Krímstaga á tímum síðari heimsstyrjaldar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×