Innlent

Yfirheyrslur ekki á döfinni

Snærós Sindradóttir skrifar
Grímur Grímsson á blaðamannafundi vegna máls Birnu.
Grímur Grímsson á blaðamannafundi vegna máls Birnu. vísir/anton
Þrír menn innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að því að klára rannsóknina á hvarfi og andláti Birnu Brjánsdóttur. Niðurstöður úr rannsóknum á lífsýnum eru teknar að berast frá Svíþjóð, þar sem þau hafa verið til rannsóknar í rúman mánuð. Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar deildar lögreglunnar, vill ekki gefa upp hvort niðurstöðurnar styðji útgangspunkt rannsóknarinnar. Þá vill hann ekki gefa upp hvers eðlis sýnin eru.

Rúmar fimm vikur eru síðan Birna Brjánsdóttir hvarf. Grímur segir að ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um að yfirheyra manninn, sem grunaður er um að hafa banað henni, neitt frekar. Maðurinn hefur setið í einangrun á Litla-Hrauni frá 19. janúar. „Það eina sem ég hef viljað segja varðandi yfirheyrslurnar er að það liggur ekki fyrir játning.

Við erum að vinna í því að ljúka rannsókn. Það er verið að safna öllum gögnum sem tilheyra málinu, meðal annars því sem eftir er að fá af niðurstöðum úr sýnum. Þegar slíkt liggur fyrir þarf að yfirheyra og kynna niðurstöður eftir atvikum. Síðan þarf bara að skrifa greinargerð í málinu,“ segir Grímur. Hann áætlar að nokkrar vikur séu þar til lögregla sendi rannsóknina áfram til héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um ákæru.

Í gær staðfesti Hæstiréttur áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum grunaða.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×