Sport

Yfirburðirnir að taka enda?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Grigor Dimitrov eftir sigurinn á Andy Murray, til hægri, í vikunni.
Grigor Dimitrov eftir sigurinn á Andy Murray, til hægri, í vikunni. Vísir/Getty
Undanúrslitin í einliðaleik karla á Wimbledon-mótinu í tennis fara fram í dag en sýnt verður beint frá þeim á Stöð 2 Sport. Novak Djokovic, næstefsti maður heimslistans, ríður á vaðið gegn Búlgaranum Grigor Dimitrov og hefst viðureign þeirra klukkan 12.00.

Að henni lokinni hefst leikur Roger Federer, sjöföldum Wimbledon-meistara, gegn Milos Ranoic.

Sjálfsagt reikna flestir með því að Djokovic og Federer vinni viðureigninar næsta auðveldlega enda hafa yfirburðir þeirra, ásamt þeim Rafael Nadal og Andy Murray, verið slíkir undanfarin ár.

Þessir fjórir hafa unnið öll risamót frá Opna franska meistaramótinu árið 2005 nema tvö - samtals 35 af 37 mótum. Juan Martin del Potro vann Opna bandaríska mótið árið 2009 og Stanislas Wawrinka Opna ástralska fyrr á þessu ári. Það er allt og sumt.

Hins vegar er margt sem bendir til þess að yfirburðir þessara fjögurra séu að taka enda hafa fleiri verið að blanda sér í baráttuna um titlana á risamótunum.

Djokovic getur unnið sitt sjöunda risamót um helgina.Vísir/Getty
Um tíma á miðvikudaginn leit út fyrir að enginn hinna fjögurra stóru kæmust í undanúrslitin á Wimbledon. Rafael Nadal hafði þá fallið úr leik gegn nítján ára ástrala, Nick Kyrgios, og Andy Murray, ríkjandi Wimbledon-meistari, tapaði fyrir Dimitrov.

Þeir Djokovic (gegn Marin Cilic) og Federer (gegn Wawrinka) voru báðir undir í sínum viðureignum í fjórðungsúrslitum en unnu þó að lokum sigur.

Á hátindi yfirburða þeirra fjögurra einokuðu þeir nánast undanúrslit stórmótanna en hægt og rólega hefur hallað undan fæti hjá þeim. Murray mun falla niður í tíunda sæti næst þegar heimslistinn verður gefinn út og Federer hefur unnið aðeins eitt risamót í síðustu sextán tilraunum (Wimbledon árið 2012).

Nadal virtist aftur kominn á beinu brautina eftir meiðsli í upphafi síðasta árs en tap hans gegn Kyrgios kom tennisheiminum í opna skjöldu.

Milos Raonic ætlar að ryðja Roger Federer úr vegi í dag.Vísir/Getty
Á meðan hefur ný og öflug kynslóð tennismanna komið upp og þykir af mörgum líkleg til að ryðja sér rúms innan skamms. Fulltrúar hennar á þessu móti eru þeir Dimitrov og Raonic og þeir hafa séð að það er ekki lengur óyfirstíganleg hindrun að leggja einhvern hinna stórra að velli á risamóti.

„Þessir ungu strákar eru algjörlega óhræddir,“ sagði Jimmy Connors, áttfaldur risamótsmeistari, við BBC í vikunni. „Þeir blikka ekki augum og spila alltaf til sigurs.“

„Þeir minna mig á nokkra af þeim strákum sem ég ólst upp með - John McEnroe og Björn Borg. Pete Sampras kemur einnig upp í hugann.“

„Það kemur alltaf að því að við þurfum að víkja fyrir yngri mönnum. Þeir eldri eru nú að berjast fyrir sinni stöðu og þeir ungu hafa einsett sér að velta þeim af stalli. Þetta eru afar spennandi tímar.“


Tengdar fréttir

Federer vann svissneska stríðið

Roger Federer er kominn í undanúrslit á Wimbledon-mótinu í tennis eftir sigur á landa sínum Stan Wawrinka í átta manna úrslitum í dag. Hann veit ekki hver mótherji hans verður fyrr en seinna í kvöld.

Djokovic lenti undir en vann

Novak Djokovic, efsti maður heimslistans, er kominn áfram í undanúrslit Wimbledon-mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×