Innlent

Yfir 90% barna hjá tannlækni

Svavar Hávarðsson skrifar
Nýjar reglur um tannlækningar barna hafa mikil áhrif.
Nýjar reglur um tannlækningar barna hafa mikil áhrif. NordicPhotos/Getty
Árið 2014 voru 64% barna skráð hjá heimilistannlæknum en það hlutfall hefur nú hækkað í 91% þeirra barna sem eiga rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum.

Þá er undirbúningur hafinn að samræmdri skráningu og innköllun tannheilsugagna barna og ungmenna hjá Embætti landlæknis. Þetta kemur fram í nýrri eftirfylgni­skýrslu Ríkisendurskoðunar um átaksverkefni um tannlækningar fyrir börn tekjulágra forráðamanna.

Upplýsingar frá velferðarráðuneyti sýna að Sjúkratryggingar Íslands hafi greitt fyrir tannlækningar 46.167 barna árið 2016. Það eru 69% barna sem rétt eiga á niðurgreiddri tannlæknaþjónustu í samræmi við samning um tannréttingar barna frá 2013.

Ríkisendurskoðun telur einnig jákvætt að undirbúningur sé hafinn að samræmdri skráningu og innköllun tannheilsugagna barna og ungmenna, enda ætti slíkt að auðvelda rannsóknir á tannheilsu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×