Innlent

Yfir 200 manns sótt réttargæslu til Rauða krossins

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Ár er liðið síðan Rauði krossinn tók að sér réttindagæslu fyrir hælisleitendur. Síðan þá hafa vel yfir tvö hundruð manns sótt um hæli á Íslandi. Hælisleitendur það sem af er ágústmánuði eru þrjátíu og sjö en umsækjendur hafa aldrei verið jafn margir í einum mánuði.

Rauði krossinn hefur sinnt réttindagæslu fyrir hælisleitendur frá  því  í  ágúst  á  síðasta  ári. Markmiðið er að  tryggja að  málsmeðferð  fari mannúðlega fram og  það  samkvæmt lögum og alþjóðlegum skuldbindingum.

Hermann Ottósson
Aukinn fjöldi flóttamanna á Íslandi tengist málefnum Evrópu

Að  sögn Hermanns Ottóssonar, framkvæmdastjóra Rauða krossins  á  Íslandi, hafa tvö  hundruðtuttugu og sex manns sótt um hæli og  þar af  þrjátíu og sjö  í  ágústmánuði. Mánaðarlegur meðalfjöldi síðastliðið  ár hefur verið  í  kringum tuttugu.

Hermann bendir  á  að  síðsumar sé  sá  tími sem flestir sækja um hæli en hann  ítrekar um leið  aðmiklar sveiflur  í  fjölda hælisleitenda hljóti að  tengjast  þeim stórtíðindum sem eiga sér stað  nú  álandamærum Evrópuríkja.

„Ég held líka að þetta hljóti að tengjast þeim gríðarlega fjölda flóttamanna sem komið hafa yfir Miðjarðarhafið og með öðrum leiðum til Evrópuríkja,“ segir Hermann.

Frá  áramótum hafa  þrjú  hundruð  og fjörutíu  þúsund flóttamenn lagt leið  sína að  yrti landamærum Evrópu. Ríkisstjórn Angelu Merkel,  Þýskalandskanslara, gerir ráð  fyrir  því  að  sú  tala verði  íkringum  átta hundruð  þúsund  í  árslok. Langflestir eru frá  Sýrlandi og ríkjum  í  norður-Afríku.

Íslendingar hafa valið leið manngæsku og mannúðar

„Þetta eru Eritreumenn, Súdanir, Sýrlendingar sem mynda langstærsta hluta hópsins. Það er líka alltaf ákveðinn hópur frá Austur-Evrópu sem leitar hingað,“ segir Hermann. Hann segir að vel hafi gengið að hugsa um fólkið. „Við höfum veitt þeim réttaraðstoð og skoðað mál þeirra ofan í kjölin. Þaðan komum við upplýsingum og okkar greinargerðum áfram til Útlendingastofnunar sem ákveður hvort fólkið fær hæli eða ekki. Þetta er fólk sem vill gera gagn hérna og þess vegna kemur það hingað.“

Þórir Guðmundsson, deildarstjóri Rauða krossins  í  Reykjavík, sagði  í  aðsendri grein  íFréttablaðinu  í  gær að  frumvarpsdrög  þingmannanefndar um endurskoðun  útlendingalaga væri stórviðburður  á  heimsvísu en nefndin dregur  þar upp margvíslegar breytingar  á  núverandi fyrirkomulagi.  Þórir segir  Íslendinga vera  í  kjöraðstöðu til að  stýra  þessum málum  í  góðan farveg. Hermann tekur undir  það  og bendir  á  sérstöðu hennar enda hafi  þróunin verið  þveröfugt  í  mörgum nágrannalöndum okkar  þar sem  öfl sem vinna gegn innflytjendum hafa risið  upp.

„Þá erum við að fara hina leiðina. Leið mannúðar og manngæsku sem er leið sem Íslendingar í gegnum tíðina hafa valið þegar skipreka fólk rekur á okkar fjörur. Við höfum alltaf verið tilbúin að veita mat, húsaskjól og bestu ummönnun. Ég á ekki von á að það breytist neitt,“ segir Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða krossins  á  Íslandi.


Tengdar fréttir

Fjöldi flóttamanna eykst á meðan barist er

Búist við 800 þúsund flóttamönnum til Þýskalands á þessu ári borið saman við 250 þúsund í fyrra. Fólkið flýr stríðsátök, atvinnuleysi og óöryggi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×