Enski boltinn

Yaya Toure kom of seint til City

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Yaya Toure missti af 2-2 jafntefli Manchester City og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær vegna þess hve seint hann kom til baka úr landsliðsverkefni með Fílabeinsströndinni.

Frank Lampard var óvænt í byrjunarliði City í gær því Toure kom til Manchester á föstudaginn eftir að hafa leikið í 4-1 ósigri Fílabeinsstrandarinnar gegn Kamerún á miðvikudaginn.

„Yaya kom seint eftir langa ferð og gat því ekki spilað. Við eigum erfiðan leik á miðvikudaginn (gegn Bayern Munchen í Meistaradeildinni). Það var ekkert vandamál að skipta honum út í þessum leik,“ sagði Manuel Pellegrini knattspyrnustjóri Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×