Lífið

Wu Tang Clan mætir á Secret Solstice

Bjarki Ármannsson skrifar
Reykjavíkurborg hefur veitt leyfi fyrir því að tónlistarhátíðin Secret Solstice verði haldin í annað sinn í sumar. Það má búast við tónlistarhátíð á borð við það sem við þekkjum erlendis frá, en líkt og í fyrra verður nær  öllum Laugardalnum breytt í risastór tónleikasvæði.

Rúmlega sextíu hljómsveitir hafa verið bókuð á hátíðina í ár en þar ber sennilega helst að nefna sögufrægu rappsveitina Wu Tang Clan. Vísir greindi frá því á dögunum að sveitin væri á leið til landsins en nú hefur fengist staðfest að hún er á leið á hátíðina í Laugardalnum. 

Þórhildur Þorkelsdóttir tók þau Jakob Frímann Magnússon, einn skipuleggjenda Secret Solstice, og Ósk Gunnarsdóttur, kynningarstjóra hátíðarinnar, tali í beinni í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×