Sport

Wozniacki skellti Sharapovu

Wozniacki fagnar sigrinum.
Wozniacki fagnar sigrinum. vísir/getty
Fyrrum unnusta kylfingsins Rory McIlroy, Caroline Wozniacki, blómstrar á vellinum líkt og Rory eftir skilnaðinn.

Hún er komin í átta manna úrslit á US Open eftir að hafa lagt Mariu Sharapovu í þrem settum - 6-4, 2-6 og 6-2.

Þetta er í fyrsta skipti í tvö ár sem Wozniacki kemst svo langt á stórmóti. Hún var um tíma á toppi heimslistans.

"Ég lagði allt undir og tók áhættur. Ef ég myndi tapa þá ætlaði ég að tapa með stæl. Sem betur fer gekk þetta upp hjá mér," sagði Wozniacki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×