Viðskipti innlent

WOW hefur flug til New York allan ársins hring í nóvember

Atli Ísleifsson skrifar
WOW air flýgur nú þegar allan ársins hring til sex áfangastaða í Norður-Ameríku.
WOW air flýgur nú þegar allan ársins hring til sex áfangastaða í Norður-Ameríku. Vísir/Steingrímur Þórðarson
WOW air mun hefja flug til New York þann 25. nóvember næstkomandi, en sala á flugsætum hófst í dag.

Í tilkynningu frá félaginu segir að flogið verði til New York alla daga ársins. Flogið verður til Newark-flugvallar í nýjum Airbus A321 þotum. „Þá má benda á að tímasetningar flugáætlunarinnar eru Íslendingum mjög hagstæðar en brottför er kl 15:15 sem er töluvert fyrr en boðið hefur verið upp á fram til þessa. Íslendingar geta því nýtt daginn í New York betur en áður og jafnframt aukast tengimöguleikar verulega.“

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, segir félagið stolt af því að geta boðið upp á daglegar ferðir til borgarinnar.

WOW air flýgur nú þegar allan ársins hring til sex áfangastaða í Norður-Ameríku – Washington DC, Boston, Los Angeles, San Francisco, Toronto og Montréal.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×