Viðskipti innlent

Wow air tapar hálfum milljarði

ingvar haraldsson skrifar
Skúli Mogensen, forstjóri, stofnandi og eigandi Wow air.
Skúli Mogensen, forstjóri, stofnandi og eigandi Wow air. vísir/vilhelm
Flugfélagið Wow air tapaði 560 milljónum króna á síðasta ári. Skúli Mogensen, forstóri, stofnandi og eigandi Wow air, segir það helst skýrast af því að félagið hafi neyðst til að fresta Norður-Ameríkuflugi um eitt ár þar sem félagið hafi ekki fengið úthlutaða nauðsynlega brottfarartíma á Keflavíkurflugvelli.

„Fyrir vikið þurfti að afbóka og færa til þúsundir farþega með tilheyrandi kostnaði. Heildarkostnaðurinn við undirbúninginn fyrir Norður-Ameríkuflugið og þessar tilfærslur voru nærri 500 milljónir sem gjaldfærðust á fyrri helmingi 2014 og skýrir að mestu leiti tap ársins,“ segir Skúli í tilkynningu.

Þar kemur fram að á fyrri helmingi ársins nam tap félagsins 618 milljónum eftir skatta á meðan seinni helmingur ársins skilaði 58 milljónum í hagnað eftir skatta.  Tekjur félagsins í fyrra námu 10.7 milljörðum króna miðað við 9.9 milljarða króna árið 2013, sem er aukning um 8,1 prósent. EBITDA ársins var neikvæð um 536 milljónir króna.

„Við sjáum mikinn viðsnúning á rekstri félagsins árið 2015 eftir að við hófum loks Norður-Ameríkuflug okkar en meðalsætanýting á þeim flugum hefur verið yfir 90% og heildarfarþegaaukning á fyrstu 9 mánuðum ársins er 38% miðað við sama tíma og í fyrra,“ bætir Skúli við.

WOW air segir að þar sem hætt hafa þurft við fyrirhugað flug til Norður-Ameríku hafði það haft áhrif á fyrirhugaða stækkun félagsins í Evrópu.  „Þar sem félagið var knúið til þess að hætta við flug til Boston var ekki grundvöllur fyrir því að vera með fimm flugvélar í rekstri sumarið 2014. Fyrir vikið varð WOW air einnig að hætta við flug til Stokkhólms sem hafði verið í sölu frá miðjum september árið 2013. Þessi niðurstaða hafði áhrif á þúsundir farþega sem höfðu keypt flug með WOW air.  Komið var til móts við þessa farþega að öllu leyti og þeim boðin endurgreiðsla sem skýrir tap á fyrsta helmingi ársins 2014,“ segir í tilkynningunni.



Telja þjóðina alla hafa tapað á frestun Ameríkuflugs

Þá hafði WOW air fjárfest um 150 milljónum króna í undirbúning fyrir áætlunarflug til Norður-Ameríku. Auk þess megi vera ljóst að íslenska ferðaþjónustan í heild sinni hafi orðið fyrir verulegum tekjumissi árið 2014 vegna þess að WOW air varð að hætta við Norður-Ameríku flug sitt.

„WOW air hafði gert ráð fyrir um 23 þúsund erlendum farþegum frá Boston og um 12 þúsund erlendum farþegum frá Stokkhólmi miðað við 80% sætanýtingu á vélum sínum. Þess má geta að yfir 90% meðalsætanýting hefur verið á flugum WOW air frá Norður-Ameríku síðan félagið hóf þaðan flug í vor.  Miðað við meðalkortaveltu erlendra ferðamanna eyðir ferðamaður um 115.000 krónum hér á landi. Miðað við að fyrrnefndir ferðamenn komu ekki til landsins árið 2014 runnu ekki 4 milljarðar króna til hótela, bílaleiguaðila, íslenskra hönnuða, veitingastaða eða annarra afþreyingar- og þjónustuaðila á þessu ári.  Jafnframt eru hreinar tekjur ríkissjóðs á hvern farþega um 32 þúsund krónur samkvæmt vefsíðu Fjármálaráðuneytisins og tapaði því ríkið um 1,1 milljarði króna árið 2014 á því að WOW air stundaði ekki áætlunarflug frá Norður-Ameríku það árið.  Síðast en ekki síst töpuðu íslenskir neytendur þar sem engin samkeppni ríkti í flugi til Norður- Ameríku og Svíþjóðar árið 2014,“ segir í tilkynningu frá Wow.


Tengdar fréttir

Wow ætlar að tvöfalda sætaframboð í Ameríkuflugi

Síðan WOW air hóf áætlunarflug til Boston hefur fjöldi farþega frá Boston til Íslands aukist um 130% en þá eru ekki meðtaldir tengifarþegar sem halda áfram með vélum félagsins til áfangastaða í Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×