Wow air hagnast um 400 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi ingvar haraldsson skrifar 28. apríl 2016 13:41 Skúli Mogensen er stofnandi og forstjóri WOW air. vísir/vilhelm
Flugfélagið Wow air hagnaðist um 400 milljónir króna á fyrstu þremur mánuðum ársins samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Heildartekjur á tímabilinu námu 4 milljörðum króna sem er 141% aukning miðað sama tímabil í fyrra, þegar tekjurnar námu 1,7 milljarði króna. Rekstarhagnaður án afskrifta á fyrsta ársfjórðungi (EBITDA) voru 680 milljónir króna og jókst um milljarð milli ára. Hagnaður félagsins eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi var 400 milljónir króna samanborið við 280 milljón króna tap á fyrsta ársfjórðungi árið 2015. Á fyrsta ársfjórðungi flaug WOW air með 193 þúsund farþega sem er aukning um 119% á milli ára. Sætanýtingin á fyrsta ársfjórðungi er 88% og fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 164% milli ára sem er mesta aukning frá stofnun félagsins. „Við erum mjög ánægð með árangur okkar á fyrsta ársfjórðungi enda gríðarleg aukning í bæði sætaframboði og afkomu. Við höfum vaxið hratt og það er ánægjulegt að sjá hversu vel okkur hefur tekist að ná frábærri nýtingu yfir vetrarmánuðina þrátt fyrir meira en tvöföldun á framboði. Persónulega er ég fyrst og fremst þakklátur fyrir hversu góðar móttökur við höfum fengið á Norður-Ameríkuflugi okkar sem og hversu vel WOW teymið hefur haldið utan um þennan mikla vöxt með brosi á vör“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air, í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira