Lífið

Working Title kaupir víkingamynd Baltasars

Working Title Films hefur keypt réttinn að víkingamynd Baltasars Kormáks. Fréttablaðið/Anton Brink
Working Title Films hefur keypt réttinn að víkingamynd Baltasars Kormáks. Fréttablaðið/Anton Brink
Breska framleiðslufyrirtækið Working Title Films hefur keypt kvikmyndaréttinn að víkingamynd Baltasars Kormáks en gengið var frá samningum þess efnis nýverið.

Samkvæmt nýjum samningum mun Baltasar leikstýra myndinni og vera einn af meðframleiðendum. Working Title á réttinn til tveggja ára og er stefnt að því að gera myndina innan þess tíma. „Ég er búinn að vinna lengi að þessu," segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. Working Title Films er feikilega virt framleiðslufyrirtæki, gerir kvikmyndir oft með Universal en leiðir Baltasars og fyrirtækisins lágu fyrst saman í gegnum Contraband, sem er endurgerð á Reykjavík-Rotterdam.

Það vakti mikla athygli þegar Fréttablaðið greindi frá því í október árið 2008 að Baltasar hygðist gera hér stærstu kvikmynd Íslandssögunnar, 60 milljón dollara víkingamynd. Framleiðendur frá bandaríska framleiðslufyrirtækinu 26 Films komu hingað og skoðuðu aðstæður og allt leit vel út, byggja átti víkingaþorp og láta það veðrast fyrir tökur. En svo fóru á kreik sögusagnir um að myndin yrði ekki að veruleika en Baltasar vísar því algerlega á bug. „Það sem gerðist var að framleiðendurnir á bak við 26 Films hættu að vinna saman. Ég fór með handritið til Working Title og þeir voru mjög spenntir."

En þá kom sjálfur Mel Gibson og setti stórt strik í reikninginn. Hollywood-stjarnan tilkynnti að hún hygðist gera víkingamynd með Leonardo DiCaprio í aðalhlutverki. „Og þá fraus verkefnið eiginlega, menn voru ekki tilbúnir að fara í framleiðslu á öðru svona keimlíku efni."

Hreyfing komst á málið þegar Gibson klúðraði sínum málum með undarlegri hegðun í einkalífinu og þegar tökum á Contraband lauk fóru samningaviðræður á fullt aftur. Þeim lauk svo fyrir skemmstu. „Svona stórt verkefni tekur alltaf sinn tíma."

Baltasar er hóflega bjartsýnn enda farinn að þekkja kvikmyndabransann vel; ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið. „Vonandi kemst þetta af stað, framleiðendurnir koma á miðvikudag til að skoða tökustaði. Þetta getur haft góð áhrif á atvinnulífið; áttatíu prósent af tökunum færu fram hér á landi og það væru alvöru peningar sem kæmu inn í landið."

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×