Fótbolti

Wolfsburg þýskur bikarmeistari

Síðasti leikur Jurgen Klopp endaði með tapi í bikarúrslitum.
Síðasti leikur Jurgen Klopp endaði með tapi í bikarúrslitum. vísir/getty
Jurgen Klopp, þjálfari Dortmund, náði ekki að kveðja liðið með titli er liðið mætti Wolfsburg í úrslitum þýsku bikarkeppninnar. Wolfsburg fór með 3-1 sigur af hólmi.

Dortmund komst yfir strax á 5. mínútu þegar Pierre-Emerick Aubameyang skoraði. Adam var hins vegar ekki lengi í paradís því Luiz Gustavo jafnaði metin á 22. mínútu. Kevin de Bruyne kom Wolfsburg yfir ellefu mínútum síðar og Hollendingurinn Bas Dost innsiglaði sigurinn fyrir Wolfsburg með marki á 38. mínútu.

Wolfsburg getur vel við unað með uppskeru tímabilsins. Auk þess að vera bikarmeistari, þá endaði liðið í öðru sæti deildarinnar og leikur því í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×