Formúla 1

Wolff: Við sögðum Hamilton að vera áfram úti

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Wolff segir Hamilton hafa heimtað þjónustuhlé og liðið samþykkt.
Wolff segir Hamilton hafa heimtað þjónustuhlé og liðið samþykkt. Vísir/Getty
Liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff segir að Lewis Hamilton ökumaður liðsins hafi átt stóran þátt í því að hið örlagaríka þjónustuhlé fór fram.

Hamilton var fremstur í Mónakó kappakstrinum áður en öryggisbíllinn kom út. Ekkert virtist geta komið í veg fyrir að hann kæmi fyrstur í mark. Hann tók þá þjónunstuhlé og tapaði forystunni til liðsfélaga síns, Nico Rosberg sem tók ekki þjónustuhlé. Sebastian Vettel komst einnig fram úr Bretanum.

Wolff hefur nú svipt hulunni af því hvað fór fram á milli liðsins og Hamilton í ákvörðunarferlinu.

„Við sögðum honum að vera áfram úti á brautinni,“ sagði Wolff. „Svar Lewis var neikvætt og að dekkin hefði tapað hitastiginu. Við höfðum eina sekúndu til að taka ákvörðun og við gerðum mistök í því að kalla hann inn,“ hélt Wolff áfram.

Wolff sagði að mistökin hafi orðið hjá liðinu. Liðið ber ábyrgð á að bilið fyrir aftan ökumenn þess sé nægjanlegt til að koma fyrir þjónustuhléi.

„Við töldum okkur geta komið honum út á brautina fyrir framan alla aðra. Því miður voru upplýsingar um tímann sem við höfðum rangar. Jafnvægið á milli upplýsinga og innsæis verður að vera rétt. Tækin sem við höfðum sagði okkur að bilið væri nægjanlegt en það voru rangar upplýsingar. Þegar öryggisbíllinn er úti þarf um 12 sekúndna bil til að koma að þjónustuhléi. Tækin sýndu að við hefðum það bil,“ sagði Wolff að lokum.

Tæknin stríddi Mercedes á sunnudaginn og kostaði Hamilton fyrsta sætið í Mónakó. Hamilton hafði samt sitt að segja um hléið og vildi ólmur fá ný dekk.


Tengdar fréttir

Hamilton: Ég á meira inni

Lewis Hamilton sýndi hvað hann getur á seinni æfingu gærdagsins. Hann var 0,7 sekúndum á undan liðsfélaga sínum hjá Mercedes, Nico Rosberg.

Bílskúrinn: Mercedes með martraðir

Eftir rólega byrjun stóð Mónakó kappaksturinn undir væntingum hvað varðar glundroða og upplausn. Þvílíkir lokahringir sem leiddu til þess að Nico Rosberg vann og Sebastian Vettel varð í öðru sæti.

Lewis Hamilton á ráspól í Mónakó

Lewis Hamilton á Mercedes náði sínum fyrsta ráspól í Mónakó. Liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar en átti ekkis var. Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×