Formúla 1

Wolff er gapandi yfir þroska Hamilton

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsins í Formúlu 1 segir að Lewis Hamilton hafi þroskast gríðarlega mikið síðan hann kom til liðsins.

Wolff segir að ófarir tímabilsins hafi reynt á Hamilton en þolinmæði og þroski viðbragða heimsmeistarans hafa sýnt hversu mikið hann hefur þroskast andlega. Wolff segist raunar gapandi yfir andlegum þroska Hamilton.

Wolff segir að það sé ekki annað hægt en að sýna Hamilton samúð. Hann hefur mátt þola óhapp í fyrstu beygju í öllum þremur keppnum tímabilsins.

Hamilton er nú 36 stigum á eftir liðsfélaga sínum Nico Rosberg, í heimsmeistarakeppni ökumanna. Rosberg hefur aldrei náð meira forskoti á Hamilton. Hamilton er þó ákveðinn í að koma til baka í baráttuham.

„Hann er á góðum stað, þroskinn sem við höfum séð hann ná andlega er ótrúlegur. Hann hefur verið stöðugur síðustu þrjú ár, frá því hann kom til liðins. Hann hefur unnið tvo heimsmeistaratitla og fundið sig sem manneskju að mínu mati,“ sagði Wolff.

„Það er gríðarleg pressa á honum með allri þeirra gagnrýni sem beinist að honum en hann heldur áfram að trúa á eigin innsæi og hann fylgir eigin sannfæringu og það virðist virka fyrir hann,“ bætti Wolff við.

„Við erum með tvo mjög góða ökumenn sem eru í góðum gír, og hafa unnið svo vel með liðinu og smita orkunni sinni í liðið og leiða alla áfram og hvetja alla til að standa sig. Lewis hefur verið snöggur að koma í bílskúrinn og taka í hendina á öllum og klappa þeim á bakið þrátt fyrir misjafnt gengi. Ég hef verið gapandi yfir því, það er frábært,“ sagði Wolff að lokum.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton fær fimm sæta refsingu

Heimsmeistarinn ökumanna í Formúlu 1, Lewis Hamilton verður færður aftur um fimm sæti á ráslínunni í Kína eftir tímatökuna um helgina. Ástæðan er sú að Hamilton þarf nýjan gírkassa.

Pirelli fær 25 prófunardaga á ári

Alþjóðlega akstursíþróttaráðið hefur samþykkt að dekkjaframleiðandinn Pirelli fái 25 daga prófanir á nýjum dekkjum með nýjustu Formúlu 1 bílunum hverju sinni.

Bílskúrinn: Keisarinn í Kína

Nico Rosberg vann sjöttu keppnina í röð í Formúlu 1 kappakstrinum í Kína. Rosber var sannkallaður keisar í Kína. Hann var einn og yfirgefinn í forystunni alla keppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×