Formúla 1

Wolff: Þýðir lítið að ætla að róa Rosberg niður

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton fékk sértakan loðhatt að hætti Rússa eftir keppnina.
Lewis Hamilton fékk sértakan loðhatt að hætti Rússa eftir keppnina. Vísir/Getty
Lewis Hamilton vann sína 42. keppni í Formúlu 1 í dag. Mercedes er hugsanlega heimsmeistari, það fer eftir ákvörðun dómaranna, hvort þeir refsa Kimi Raikkonen. Hver sagði hvað eftir keppnina?

„Auðvitað hefði ég viljað keppa við Nico (Rosberg). Það er vont fyrir liðið að missa annan bílinn. Ég hefði viljað hafa Sebastian (Vettel) nær til að keppa,“ sagði Hamilton á verðlaunapallinum.

„Hefði verð gaman að geta ógnað Lewis meira. Það virtist þó ómögulegt. Auðvitað hefðum við viljað hafa báða bílana í verðlaunasæti,“ sagði Vettel sem varð annar á Ferrari.

„Ég er ánægður með þetta. Þetta var svolítið erfitt undir lokin og ég hélt ég hefði tapað þessu en það er frábært að ná öðru verðlaunasæti fyrir Force India,“ sagði Sergio Perez sem varð þriðji á Force India.

„Ég reyndi að taka fram úr og þegar ég var búinn að ákveða að reyna þá var ekki aftur snúið og hann sá mig ekki koma. Ég endaði þess vegna á honum. Ég veit ekki hvort mér verður refsað, ég er ekki dómari,“ sagði Kimi Raikkonen sem var að reyna að taka fram úr Valtteri Bottas en keyrði hann út úr keppninni í staðinn.

„Ég held ekki að þetta hafi verið hefðbundið keppnisóhapp. Það er ömurlegt að tapa þriðja sætinu og fara héðan með engin stig. Ég er bara vonsvikinn. Mér er eiginlega sama hvort honum verður refsað. Ég fæ aldrei þessi stig aftur,“ sagði Bottas sem var allt annað en sáttur við samlanda sinn hjá Ferrari.

Ferrari menn börðust af hörku innbyrðis á köflum í dag.Vísir/getty
„Það bilaði eitthvað í inngjöfinni hjá Nico. Ferrari lýtur mjög vel út og það verður hörð barátta á næsta ári. Það var líka vesen á bíl Lewis. Afturvængurinn var ekki alveg nógu stöðugur. Titilbaráttan er ekki búin fyrr en hún er búin. það þýðir lítið að ætla að róa Rosberg niður núna. Hann á eftir að mæta dýrvitlaus til Texas,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Það er ýmislegt að fara í gegnum hausinn á mér. Það er blandað andrúmsloft. Við þyggjum þessi úrslit. Það er gaman að ná verðlaunasæti aftur. Leitt að Nico (Hulkenberg) gat ekki klárað,“ sagði Andy Stevenson, keppnisstjóri Force India.

„Við vorum eiginlega bara fyrir í upphafi. Við börðumst innbyrðis við Fernando (Alonso). Þær breytingar sem við viljum gera núna er fæstar hægt að gera á tímabilinu. Við náðum í stig,“ sagði Jenson Button sem náði níunda sæti á McLaren.

„Við erum sátt við helgina. Þetta var jákvætt, við höfum loksins náð að koma báðum bílum í stigasæti. Vonandi náum við frekari framförum í Bandaríkjunum,“ sagði Alonso sem náði síðasta stigasætinu á McLaren bílnum.

„Ég er í lagi, ég gæti ekki hlaupið maraþon akkurat núna en annars er ég góður. Ég sleppti stýrinu og spennti vöðvana og lokaði augunum og beið eftir að þetta kláraðist. Við erum að rannsaka orsök óhappsins,“ sagði Romain Grosjean sem lenti í hörðum árekstri við varnarvegg á Lotus bílnum.

Hér fyrir neðan má finna úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Rosberg á ráspól í Rússlandi

Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í tímatökunni á Sochi brautinni í dag. Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji.

Honda klárar uppfærsluskammtana í Rússlandi

Fernando Alonso, annar ökumanna McLaren-Honda liðsins mun nota ný uppfærða vél í rússneska kappakstrinum um helgina. Liðsfélagi hans, Jenson Button notar gömlu vélina.

Hamilton fyrstur í mark í Rússlandi

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark á Mercedes bílnum í Rússlandi. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari. Sergio Perez kom Force India bílnum í þriðja sæti í mark á ótrúlegan hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×