Formúla 1

Wolff: Red Bull mikil ógn við Mercedes

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton og Wolff sitja fyrir svörum.
Hamilton og Wolff sitja fyrir svörum. Vísir/Getty
Heimsmeistarar bílasmiða í Formúlu 1 halda til Ungverjalands í góðum gír eftir að hafa unnið keppnina á Silverstone brautinni þar síðustu helgi. Ungverski kappaksturinn er þó erfiður liðinu sögulega.

Mercedes liðið hefur ekki unnið ungverska kappaksturinn síðan V6 vélarnar voru teknar í notkun. En á sama tíma hefur Mercedes nánast einokað aðrar keppnir.

Liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff segir að keppnin muni henta Red Bull einkar vel. Red Bull liðið sýndi það og sannaði á Silverstone að bíll liðsins er býsna góður og vel samkeppnishæfur. Hann segir Mercedes stafa mikil ógn af Red Bull, sérstaklega á ungversku brautinni.

Brautin í Ungverjalandi krefst mikils af loftflæðihönnuðum liðanna og góðu gripi, fremur en hreinu afli. Því betri sem undirvagn bílanna er því betur gegnur þeim í ungverska kappakstrinum.

„Við munum þurfa að eiga fullkomna helgi til að vinna í Ungverjalandi,“ sagði Wolff.

Lewis Hamilton, heimsmeistari ökumanna og annar ökumanna Mercedes gæti orðið sigursælasti ökumaðurinn á brautinni, vinni hann keppnina um næstu helgi. Hann er sem stendur jafn goðsögninni Michael Schumacher með fjórar unnar keppnir hvor.

„Ég hlakka til að bera þann jákvæða straum sem ég finn enn fyrir frá Silverstone áfram inn í næstu keppnishelgi. Ég er ferskur og sjálfstraustið er gott. Mér hefur alltaf gengið vel í Ungverska kappakstrinum. Ég get ekki beðið eftir að fá að komast út á brautina,“ sagði heimsmeistarinn Hamilton.


Tengdar fréttir

Red Bull vill vinna meira á árinu

Red Bull liðið í Formúlu 1 vill vinna fleiri keppnir á árinu. Liðsstjóri Red Bull, Christian Horner segir liðið hætt að elta Ferrari. Liðið setji nú markið á Mercedes.

Bílskúrinn: Spennandi síðdegi á Silverstone

Lewis Hamilton á Mercedes minnkaði forskot liðsfélaga síns í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í eitt stig með því að vinna á heimavelli sínum, síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×