Formúla 1

Wolff: Nýjar reglur setja Formúlu 1 á upphafsreit 2017

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Toto Wolff og Dr. Dieter Zetsche
Toto Wolff og Dr. Dieter Zetsche Vísir/Getty
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes segist telja að Formúla 1 verði „komin aftur á upphafsreit,“ á næsta tímabili, þökk sé nýjum reglum.

Mercedes liðið náði sínum þriðja heimsmeistaratitli í röð í Japan. Á sama tíma er öruggt að annar ökumanna liðsins verður heimsmeistari.

„Hvað frammistöðu varðar höfum við ekki verið eins afgerandi og áður. Ég tel það óumflýjandlegt með stöðugum reglum,“ sagði Wolff í samtali við Autosport.

„Við höfum alltaf haft þá skoðun - látum reglurnar eiga sig og bilið mun minnka og að endingu munum við fá góðan kappakstur. Nú hefur einhver tekið ákvörðun um að finna upp eitthvað nýtt fyrir næsta ár og þá erum við aftur á byrjunarreit,“ sagði Wolff.


Tengdar fréttir

Nico Hulkenberg fer til Renault

Formúlu 1 lið Renault hefur staðfest að Nico Hulkenberg hafi samið við liðið. Hulkenberg er sem stendur samningsbundinn Force India.

Bílskúrinn: Spenna á Suzuka

Nico Rosberg tók risastórt skref í átt á sínum fyrsta heimsmeistaratitili í japanska kappakstrinum um liðna helgi. Lið Rosberg, Mercedes tryggði sér um leið þriðja heimsmeistaratitil sinn í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×