Wise kemur af fullum þunga inn á smásölumarkaðinn 26. ágúst 2014 16:00 Wise lausnir ehf. og Hugbúnaður hf. eiga í góðu samstarfi. Hér takast þeir í hendur, Jón Heiðar Pálsson, sviðsstjóri hjá Wise, og Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hugbúnaðar. Mynd/Andri Marinó
Tvö mikilsmetin fyrirtæki á Íslandi, Wise lausnir ehf. (áður Maritech) og Hugbúnaður hf., hafa átt í nánu samstarfi þar sem Wise er orðinn sölu- og þjónustuaðili verslunarkerfisins Centara á Íslandi. Wise mun leggja áherslu á að bjóða Centara-verslunarkerfið verslunum og veitingastöðum sem vilja tengingu við undirliggjandi viðskiptakerfi Microsoft Dynamics NAV. Wise er stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi og er í fararbroddi í upplýsingatækni, en hugbúnaðarfyrirtækið Hugbúnaður hf. er eitt elsta hugbúnaðarfélag Íslands stofnað 1981 og hefur selt afgreiðslukerfi sín um allan heim.Vinsæll kostur „Sem dæmi um viðskiptavini sem nota Centara og Microsoft Dynamics NAV á Íslandi má nefna Hagkaup, Rúmfatalagerinn, Kost, Kea, Hótel Reynihlíð og Reykjanesbæ,“ segir Jón Heiðar Pálsson, sviðsstjóri hjá Wise, og bendir á að þar sem Wise og Hugbúnaður séu bæði til húsa á 4. hæð í Borgartúni 26 séu öll samskipti og samvinna þægileg og auðveld. „Saman bjóðum við upp á heildstæða lausn, allt frá kassa til bókhalds, sem hentar íslenska markaðnum fullkomlega,“ segir Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hugbúnaðar. Hann segir mikla þörf hafa verið á íslenska markaðnum fyrir lausnir sem séu einfaldari og auðveldari í rekstri og uppsetningu.Wise hefur verið valið samstarfsaðili ársins af Microsoft þrisvar sinnum.Fyrir stóra sem smáa „Í nútímarekstrarumhverfi ríkir sama þörf hjá smærri sem stærri fyrirtækjum hvað varðar upplýsingatækni og tengingu við undirliggjandi viðskiptakerfi. Fram að þessu hafa ekki margar lausnir verið á boðstólum á nægjanlega hagstæðu verði og með hagkvæmu rekstrarumhverfi,“ segir Jón Heiðar. Með Centara og tengingu við Dynamics NAV geta allir komið sér upp og rekið fullkomið bókhalds- og verslunarkerfi, allt frá einni verslun til stærstu verslanakeðja. „Centara er einnig hægt að nota eitt og sér, með eða án bókhalds eða tengt öðrum kerfum,“ útskýrir Jón Heiðar. Hann bendir á að áður gátu aðeins stærri aðilar nýtt sér sambærilegar lausnir frá öðrum aðilum en að þær hafi oftast verið bæði dýrar og flóknar í innleiðingu og rekstri. Með Microsoft Dynamics NAV og Centara, uppsettu og tilbúnu til notkunar, geta því allir nýtt sér og haft aðgang að fullkomnu verslunarkerfi á verði sem hentar stærri sem smærri fyrirtækjum.“Mörg fyrirtæki á Íslandi nota Centara-verslunarkerfið með tengingu við Microsoft Dynamics NAV.Heildstæð lausn „Viðskiptavinir okkar geta til dæmis valið um að kaupa eða leigja hugbúnaðinn sem þarf. Þá er í boði að vera með hýsingu og rekstur í Skýinu, á Azure Microsoft hýsingu,“ lýsir Jón Heiðar og nefnir að stór kostur við lausnir Wise sé að kostnaður við uppsetningu og rekstur sé þekktur og fyrirsjáanlegur. „Uppsetningin er þægileg þar sem Dynamics NAV er sett upp í Skýinu og er tilbúið til notkunar með Office 365 ef óskað er. Centara-tengill er hluti af þeirri uppsetningu, auk algengustu sérkerfa á borð við RSM (rafræna skeytamiðlun), banka, innheimtu, uppáskrift og skönnun reikninga,“ segir Jón Heiðar. Þannig þurfi verslunarfyrirtæki ekki lengur að hugsa um uppsetningu tölvukerfa heldur einungis kassa og útstöðva. „Lausnin er nefnilega tilbúin til notkunar.“ Mikil vinna hefur verið lögð í að uppfæra bakendakerfi Centara og færa þau í vefviðmót sem einfaldar rekstur og utanumhald kerfisins, auk þess að hægt er að velja að reka kerfið sjálfur eða vera með það í Skýinu. Wise er með þjónustuver sem býður upp á bakvakt um kvöld og helgar fyrir Centara-verslunarkerfið. Nánari upplýsingar má nálgast á wise.is og navaskrift.is.
Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Kia lækkar verð á rafbílum Hlunkurinn kominn í fantaform Teya fjárfestir í framtíð verslunar á Íslandi Greiðsluáskorun Lúxus kemur líka í litlum pökkum Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn Verslun Húsasmiðjunnar á Akureyri fær alþjóðleg verðlaun Málning fyrir öll tilefni Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum glæsileg að vanda Hvað þarf marga giggara til að skipta um ljósaperu? N1 einn helsti bakhjarl KSÍ Miðaldra húsfrú á hálum ís - Polestar 3 reynsluakstur Frumsýning á nýjum Peugeot E-2008 rafbíl Plastkubbahús fyrir íslenskar aðstæður Tímamót í jeppasögunni – Konungurinn er mættur Fyrirtækjaþjónusta IKEA veitir þínu fyrirtæki byr undir báða vængi Glænýr og endurhannaður Ford Transit Custom frumsýndur Nýr Toyota C-HR – frumsýning á laugardag Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 Eitt glæsilegasta skrifstofuhúsnæði borgarinnar hefur opnað - Regus Kirkjusandur InstaVolt lækkaði verð tímabundið á hraðhleðslustöðinni í Reykjanesbæ Rafmagnssportjeppinn Volvo EX30 frumsýndur - nettur, snjall og 100% rafmagn Frumsýning á Opel Corsa hefst í dag hjá Brimborg Bílalúgurnar eru okkar sérstaða Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með appi án aukagjalda Sjá meira