Viðskipti erlent

Windows 10 komið út: Start hnappurinn snýr aftur

kolbeinn tumi daðason skrifar
Windows 10 mun líta svona út á tölvum notenda.
Windows 10 mun líta svona út á tölvum notenda.
Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 10, kemur út í dag og er dreift á netinu ókeypis næsta árið. Tilkynnt var um útgáfu stýrikerfisins í september síðastliðnum og hafa margir í tæknigeiranum beðið spenntir síðan.

Meðal nýjunga í Windows 10 er að Start-hnappurinn kemur aftur, nýr vafri í stað Internet Explorer, Hello öryggiskerfi og hraðvirkara stýrikerfi. Þá getur Windows 10 keyrt smáforrit fyrir Android og iOS. Aðeins mun takmarkað magn tölva fá uppfærsluna í júlí en flestir geta uppfært í ágúst.

„Það tekur Microsoft einhvern tíma að senda öllum uppfærslu enda eru þeir að uppfæra um 500 milljón tölvur,” segir í bloggi Björns G. Birgissonar vörustjóra PC búnaðar hjá Nýherja. Þar er að finna helstu upplýsingar um hvernig notendur geta uppfært stýrikerfið sitt og hvaða kröfur séu gerðar til uppfærslu.

Stýrikerfið hefur fengið nokkuð góða dóma og segir gagnrýnandi Guardian að nýjasta útgáfan sé líklega sú besta sem Microsoft hafi sent frá sér. Gagnrýnandinn veltir þó fyrir sér hvort tilefni sé til að uppfæra kerfið strax eða bíða aðeins og sjá til í ljósi slæmrar reynslu af Windows 8 þar sem margir söknuðu meðal annars Start-hnappsins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×