Enski boltinn

Wilshere lánaður til Bournemouth út tímabilið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wilshere spilaði aðeins þrjá leiki á síðasta tímabili vegna meiðsla.
Wilshere spilaði aðeins þrjá leiki á síðasta tímabili vegna meiðsla. vísir/getty
Bournemouth hefur staðfest komu Jack Wilshere frá Arsenal.

Wilshere kemur á láni frá Arsenal en lánssamningurinn gildir til loka tímabilsins.

Wilshere hefur glímt við erfið meiðsli síðustu ár en haldist hann heill á hann eflaust eftir að reynast Bournemouth vel.

Wilshere hefur leikið með Arsenal allan sinn feril ef frá eru taldir nokkrir mánuðir 2010 þegar hann lék sem lánsmaður með Bolton Wanderers.

Wilshere hefur leikið 34 A-landsleiki fyrir England og skorað tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×