Innlent

Willum klár í kosningabaráttu haustsins þrátt fyrir nýja starfið

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Nýr þjálfari KR í Pepsi-deild karla og þingmaður Framsóknarflokksins reiknar ekki með að hætta á þingi vegna nýja starfsins.
Nýr þjálfari KR í Pepsi-deild karla og þingmaður Framsóknarflokksins reiknar ekki með að hætta á þingi vegna nýja starfsins. Vísir/Pjetur
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins og nýráðinn þjálfari KR í Pepsi-deild karla er klár í slaginn í kosningabaráttuna í haust þrátt fyrir nýja starfið. Hann gerir ekki ráð fyrir að hætta á þingi.

„Nei,nei, nú er sumarfrí á þinginu og þá notum við sumarið í þetta,“ segir Willum aðspurður hvort að að hann muni hætta á þingi en tilkynnt var um ráðningu Willums til KR í dag eftir að Bjarni Guðjónsson var látinn taka poka sinn í gær eftir lélegt gengi KR á tímabilinu.

Boðað hefur verið til kosninga í haust og er gert ráð fyrir að þær fari fram í lok október án þess þó að búið sé að festa dagsetningu. Samningur Willums hjá KR er til loka tímabilsins en síðasti leikur liðsins verður þann 1. október. Aðspurður hvort að Willum sé klár í slaginn í kosningabaráttuna í haust svarar Willum því játandi. Þá verður Alþingi sett á nýjan leik 15. ágúst næstkomandi.

Fyrsta verkefni Willums sem þjálfari KR er þó leikur gegn Norður-Írunum í Glentoran á fimmtudag í undankeppni Evrópudeildarinnar.


Tengdar fréttir

Willum Þór tekur við KR-liðinu

Willum Þór Þórsson verður næsti þjálfari KR í Pepsi-deild karla í fótbolta og tekur við liðinu af Bjarna Guðjónssyni sem var rekinn í gær. Willum Þór stýrði fyrstu æfingunni hjá KR í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×