Körfubolti

Willie Nelson í Snæfell

Willie Nelson er lentur á Íslandi.
Willie Nelson er lentur á Íslandi. mynd/aðsend
Snæfell er búið að finna sér Kana fyrir átökin sem eru fram undan í Dominos-deild karla.

Sá heitir William Henry Nelson og verður líklega ekki kallaður annað en Willie Nelson þó svo þessi sé ekki í kántrí-tónlistinni.

Nelson kom til landsins í gær og mun spila sinn fyrsta leik með liðinu á morgun er Snæfell mætir KR í Lengjubikarnum.

Þessi strákur lék síðast með LSU Shreveport í NAIA-deildinni og þar skoraði hann 22,4 stig að meðaltali í leik og tók 9,7 fráköst.

Nelson er um tveggja metra framherji og binda Hólmarar vonir við að hann sé sá maður sem liðið þurfi á að halda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×