Íslenski boltinn

Williamson framlengir við Valsmenn

Williamson ásamt Hauki Páli Sigurðssyni.
Williamson ásamt Hauki Páli Sigurðssyni. vísir/stefán
Valsmenn eru búnir að semja upp á nýtt við skoska miðjumanninn Iain Williamson.

Williamson er búinn að spila 32 leiki fyrir Valsmenn og skora tvö mörk. Hann fór í tvær minniháttar aðgerðir á mjöðm undir lok síðasta árs en er kominn í gott stand.

Valsmenn eru að vonum hæstánægðir með að halda Williamson og hér að neðan má sjá viðtal við hann sem birt var á heimasíðu Vals.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×