Formúla 1

Williams bíllinn afhjúpaður

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
FW40 bíll Williams liðsins.
FW40 bíll Williams liðsins. Vísir/Autosport.com
Autosport birti í dag fyrstu myndirnar af FW40 bíl Williams liðsins í Formúlu 1. Myndirnar eru góð vísbending um það sem koma skal hjá öðrum liðum sem munu afhjúpa sína bíla á næstu dögum.

Tæknireglur Formúlu 1 taka talsverðum breytingum fyrir tímabilið. Markmið breytinganna er að gera bílana grimmilegri og töluvert hraðari. Gárungar spá allt að fimm sekúndna skemmri tíma á hverjum hring.

Sjá einnig: Hvernig eru Formúlu 1 bílarnir að breytast.

Nú þegar 10 dagar eru þangað til fyrsta æfingalotan fyrir komandi tímabil hefst hefur Williams riðið á vaðið og birt myndir af 2017 bíl sínum. Bíllinn ber nafnið FW40, sem er vísun til 40 ára afmælis Williams liðsins í ár.

Séð framan á nýjan bíl Williams liðsins (FW40)Vísir/autosport.com
Bíllinn verður svo formlega kynntur þann 25. febrúar.

Ökumenn liðsins í ár verða nýliðinn Lance Stroll og reynsluboltinn

Felipe Massa. Massa snéri ákvörðun sinni um að hætta keppni í Formúlu 1 við til að aðstoða liðið sem missti Valtteri Bottas til Mercedes liðsins þegar heimsmeistarinn Nico Rosberg tilkynnti óvænt um að hann væri hættur í Formúlu 1.

Vísir mun fylgjast náið með frumsýningum nýrra bíla á komandi dögum.


Tengdar fréttir

Bottas: Ég get unnið Hamilton

Nýji ökumaður Mercedes liðsins, Valtteri Bottas, segir að hann geti unnið liðsfélaga sinn, Lewis Hamilton í baráttu um heimsmeistarakeppni ökumanna.

Þetta eru frumsýningardagar nýju Formúlu eitt bílanna

Nýtt tímabil Formúlu 1 hefst með æfingum á Barselóna brautinni 27. febrúar. Liðin kappkosta nú við að klára 2017 bílana sína. Nokkur lið hafa þegar tilkynnt um frumsýningardag, Vísir fer yfir málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×