Lífið

Will Smith um hjónabandið: "Það hefur stundum verið mjög kvalafullt"

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jada og Will hafa verið gift í 20 ár.
Jada og Will hafa verið gift í 20 ár. Vísir/getty
Ítrekað hafa komið fram sögusagnir í Hollywood um mögulegan skilnað hjá Will Smith og Jada Pinkett Smith en aldrei hefur orðið að því.

Will Smith tjáði sig um hjónabandið í viðtali þegar hann var staddur á frumsýningu í Los Angeles á dögunum.

„Við höfum verið gift í tuttugu ár og alltaf spurt okkur hvað sé í raun leyndarmálið á bakvið gott hjónaband. Í raun er það bara að gefast aldrei upp,“ sagði Smith.

„Það er aldrei hægt að gera ráð fyrir því að þetta verði auðvelt. Hjónaband okkar hefur verið það erfiðasta sem við höfum tekið að okkur á ævinni og það hefur stundum verið mjög kvalafullt. Við erum bara ekki manneskjur sem gefumst upp.“

Hann segir að vissulega þurfi meira að vera til staðar en bara það hugarfar að gefast ekki upp.

„Eina ráðið sem ég get gefið öðrum er að við höfum aldrei sérstaklega farið út í það að vinna í sambandinu okkar, við höfum bara unnið í okkur sem einstaklingar. Þá erum við alltaf besta útgáfan af okkur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×